Ægir - 01.12.2000, Qupperneq 37
HVERNIG VAR
Auðlindanefndarskýrslan:
Er sáttin í sjónmáli?
- stjórn LÍÚ vill viðræður um hóflegt gjald
Skýrsla Auðlindanefndar var birt á haustmánuðum og þykir mörg-
um sem hún geti boðað tímabæra sátt í þjóðfélaginu um sjávarút-
vegsmál. „Tímamótaskýrsla" sögðu sumir, „Gott innlegg í sjávarút-
vegsumræðuna", sögðu aðrir en í öllu falli má reikna með að fram
eftir árinu 2001 verði töluverð umræða um skýrsluna og næstu skref
til hinnar margumtöluðu sáttar.
Skýrsla Auðlindanefndar var víða til umfjöllunar
innan sjávarútvegsgreinarinnar í kjölfar útkomu
hennar en stjórn LIU kynnti strax sína afstöðu og
boðaði vilja til viðræðna við stjórnvöld um greiðslu
hóflegs auðlindagjalds, enda megi slíkt verða til að
ná víðtækri sátt um stjórn fiskveiða. Utvegsmenn
bentu engu að síður á stjórnarskrárbundinn rétt
sinn til að stunda fiskveiðar og minntu á að þegar
að því hafi komið að takmarka aðgang að auðlind-
inni hafi verið eðlilegt að þeir fengju aflahlutdeild-
um úthlutað enda hagsmunir þeirra skertir. Því til
viðbótar hafi yfir 80% veiðiheimilda skipt um
hendur frá því að aflamarkskerfið var tekið upp og
þannig hafi hagræðingarmarkmiði laganna um
stjórn fiskveiða verið náð.
Stjórn LIU lýsti sig sammála því afdráttarlausa
áliti Auðlindanefndarinnar að byggja eigi stjórn
fiskveiða áfram á aflamarkskerfinu, enda stuðli það
að hagræðingu og vel skipulögðum rekstri. Auð-
lindagjald verði hins vegar ekki tekið upp nema
gætt verði atriða eins og t.d. þess að auðlindagjald
standi undir skilgreindum kostnaði við eftirlit og
rannsóknir á auðlindinni, að gjaldið verði tekið af
óskiptu aflaverðmæti, að reglur um auðlindagjald
gildi til langs tíma, að tekið verði mið af starfsskil-
yrðum sjávarútvegs í samkeppnislöndunum.
Ekkert
slakað á
! samein-
ingum
Árið 2000 varð ekkert frá-
brugðið undanfömum árum
hvað varðar sameiningar fyr-
irtækja. Þannig runnu m.a.
saman fyrirtæki á Suðurnesj-
um undir hatti Þorbjarnar-
ins, Árnes og Þormóður
rammi-Sæberg urðu eitt og
loks er stórtækasta samein-
ingin á Noróuriandi þar sem
Samherji og Snæfeii voru
sameinuð undir merki Sam-
heija hf. Við það varð tii
lang stærsta útgerðarfyrir-
tæki iandsins.
TtHOCR, ‘YCÍtÍHJjtl - V^SÖ^iskijr !
'Ýeitiygakúsi} oj íarixK (þarstht tittiÍKK,
rorn tinhJuídHrfvrstttooui) tm skrtytt
wjthIjésyKjHcUm, mjtKjnm,frci ftim, dö&nm.
ftpfur Tkorgtpsuli
i
THOVl
Veitingaskip
Eitt sinn frægasta varðskip á
íslandi. Nú hlýr og notalegur
veitingastaður. Borðapantanir
ísíma: 555-6171
Fax: 555-6172
E-mail: thor@allineed.is
allineed.is/thor
37 m