Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.2000, Blaðsíða 30

Ægir - 01.12.2000, Blaðsíða 30
ÆGISVIÐTALIÐ Fisketdi Eyjafjarðar hf. á 50 prósent í eldisstöð Scotia Halibut i Nova Scotia í Kanada. Um 100 milljónir í tekjur á þessu ári Eins og áður segir hefur rekstur Fiskeldis Eyjafjarðar í þau þrettán ár sem það hefur starfað verið ævintýri líkust. Lengst af hefur fyrirtækið verið rekið á þolin- móðu fjármagni hluthafa, sem alltaf hafa haft bjarg- fasta trú á því að dæmið myndi ganga upp „Velta Fiskeldis Eyjafjarðar hefur verið að aukast ár frá ári og Ef við fáum mörg þúsund tonna laxeldisstöð i Eyjafjörö, þá aukast mjög líkur á sjúkdómum sem eru vel þekktir i nágrannalöndunum. tekjurnar í ár verða um hundrað milljónir króna. En engu að síður þurfúm við aukið fjármagn inn í fyrir- tækið vegna þeirrar miklu uppbyggingar sem framundan er og þá er ég bæði að vísa til áætlana um verulega aukna seiðaframleiðslu á Hjalteyri og stækk- un eldisstöðvarinnar í Þorlákshöfn. Eg verð ekki var við annað en að hluthafar í Fiskeldi Eyjafjarðar séu bjartsýnir á framhaldið, en jafnframt gera menn sér fyllilega grein fyrir því að framundan er mikið upp- byggingarstarf. Núna er það fýrst og fremst okkar að ákveða hvað við ætlum að framleiða mikið af seiðum og matfiski og hvar við ætlum að gera það. Fram að þessu höfum við fyrst og fremst verið að sanna það fyrir okkur sjálfúm og öðrum að við getum búið til lúðuseiði og við erum komnir yfir þann þröskuld. Núna liggur fyrir að byggja á þeim grunni og hraði þeirrar uppbyggingar markast að töluverðu leyti af því hversu miklu fjármagni við höfum úr að spila,“ segir Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri Fiskeld- is Eyjafjarðar hf. Til staðar þar sem þú þarft á þjónustu að halda Útgerðarþjónusta Olís er útgerðaraðilum alltaf til reiðu með alhliða þjónustu um land allt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Eldsneyti, smurolíur og hreinsiefni af öllum toga fyrir útgerðina. Útgerðarþjónusta Olís er einnig til staðar í erlendum höfnum og á úthafsmiðum með fjölbreytta og áreiðanlega þjónustu. 30 Olíuverzlun íslands - Sundagörðum 2 • 105 Reykjavík • Sími 515 1100 • Fax 515 1110 • www.olis.is

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.