Ægir - 01.12.2000, Blaðsíða 42
FJÁRMÁL
Meiri hagræðing í sjáv-
arútvegi nauðsynleg
Samantektin hér að framan skýrir
upp að vissu marki hvers vegna
markaðsvirði sjávarútvegsfyrir-
tækja hefur farið lækkandi á und-
anförnum mánuðum og misser-
um, en einnig skiptir máli að að-
stæður fyrirtækjanna hafa al-
mennt séð versnað á þessu ári.
Verðmyndun á hlutabréfamarkaði
mótast mjög af væntingum á
hverjum tíma. Segja má að verð-
þróun á sjávarútvegsfyrirtækjum
sýni að væntingar fjárfesta um
aukna hagræðingu í sjávarútvegi
hafa ekki gengið eftir og að þró-
unin hefur verið mun hægari en
vænst var.
I grein um sjávarútveginn verð-
ur ekki undan þvf vikist að fjalla
um nokkra veigamikla óvissu-
þætti í kringum greinina en
langvarandi óvissa er slæm fyrir
gengi félaga á hlutabréfamarkaði.
Hér skal ekki rætt um óvissu um
verð á aðföngum eins og olíu eða
verðsveiflur á sjávarafurðum. En
undirrituðum er það til efs að jafn
mikil stjórnmálaleg óvissa sé í
kringum neina eina grein eins og
sjávarútveginn. Þess vegna er
brýnt að stjórnkerfi fiskveiða
verði komið í þá stöðu að friður
geti ríkt um það. Afnema þarf þak
á hámarkskvótaeign hverrar út-
gerðar, þótt þessar skorður tak-
marki kannski ekki hagræðingu
nema að litlu leyti ennþá. Engu að
síður er mikilvægt að greininni sé
gert kleyft að þróast án slíkra tak-
markana. Þá verður að teljast eðli-
legt að sjávarútvegur búi við
sömu skilyrði og flestar aðrar
greinar hvað varðar leyfi erlendra
aðila til að fjárfesta í greininni. Að
lokum skal hér nefnt að óvissa á
vinnumarkaði hefur ekki jákvæð
áhrif á virði sjávarútvegsfyrir-
tækja, tíð verkföll eru slæm og
nauðsynlegt að launakerfin nái
betur fram sameiginlegum hags-
munum hluthafa og starfsmanna.
Undirritaður er þeirrar skoðun-
ar að tækifæri til hagræðingar séu
ennþá til staðar í sjávarútvegi.
Síðustu ár einkenndust af mikilli
uppbyggingu og fjárfestingu,
ásamt stækkandi fyrirtækjaein-
ingum. A næstunni munu fjár-
festingar ekki skipa jafn stóran
sess og síðustu ár, heldur verður
mikilvægara að ná fram aukinni
hagræðingu með því að minnka
fjárbindingu í rekstri. Frekari
sameiningar sjávarútvegsfyrir-
tækja geta flýtt þessari þróun, auk
þess sem ávinningur þeirra sam-
eininga sem fyrir liggja núna er
ekki að öllu leyti kominn fram.
Það er nauðsynlegt að auka arð-
semi í sjávarútvegi til að mæta
þeirra óvissu sem er í kringum
greinina og til þess þarf að ná
fram aukinni hagræðingu.
Skipamiðlun
Þuríðar Halldórsdóttur hdl. Lögiltur skipasali
Hverfisgötu 105,101 Reykjavík, s. 5517280 - 8933985, fax 5517271
thuridurkh@islandia.is - vefs: www.hreidrid.is
42
Onnumst sölu á öllum gerðum skipa og báta