Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.2000, Blaðsíða 25

Ægir - 01.12.2000, Blaðsíða 25
ERLENTl Veiðigiald í Perú Sett hefur verið veiðigjald á skip í Perú sem veiða ansjósur, sardínur og makríl í bræðslu. Gjaldið er óháð afla en miðast við burðargetu skipa, fiski- tegund sem gert er út á og hvort skip- ið er með frystilest. Sem dæmi má nefna að skip með 300 rúmmetra frystilest greiðir um 2,4 ISK á ári en án frystilestar er gjaldið um 2 millj- ónir ÍSK. Gjalddagar eru fjórir og frá því sem greitt er á síðasta gjalddaga má draga kostnað vegna búnaðar til eftirlits frá gervitungli, rúmar 12 þús- und ISK á mánuði. Sé gjaldið ekki greitt missir skip veiðiréttinn. Út- gerðarmenn sem greiða með reiðufé fá 20% afslátt. Ráðuneyti fiskveiða í Perú segir að gjaldið verði notað til eftirlits, rann- sókna og þróunarverkefna í fiskveið- um. Aður hafði verið innheimt veiði- gjald fyrir risasmokkfisk, túnfisk og Kyrrahafsþorsk. Veiðitakmörkun á Rockall svæðinu Bretar hafa farið þess á leit við Evrópu- sambandið að það hlutist til um að fylgst verði með ýsuveiðum á Rockall svæðinu, sem hingað til hafa verið eft- irlitslausar. Málið kann að verða falið Noróaustur-Atlantshafs fiskveiðinefnd- inni. Löndin sem hér um ræðir og hafa mest veitt á svæðinu eru ísland og Rússland. Salmonella í trillubát Ástæða er til aó vera vel á verói gagn- vart salmoneLlusýklum víðar en i kjúkLingakjöti. Þannig eru dæmi um i Noregi að fundist hafi saLmonelLa í is- sýni sem tekið var úr triLLu frá Heroy í Noregi. MatvæLaeftirLitið þar bjóst reyndar við þvi eftir að sýklar fundust í drykkjarvatni. Drepa ristar í trolli smáfisk? Með því að setja ristar í þorsk- og rækju- troll er hægt að veiða á svæðum sem ann- ars hefðu verið lokuð vegna smáfisks. Rannsóknir hafa sýnt að smáþorski stafar lítil hætta af að mæta ristunum einu sinni og um 95% af smáýsu lifir það af en ekki hefur verið rannsakað hvernig smá- fiskinum reiðir af eftir að hafa farið marg- sinnis gegnum ristar. Veiðar með ristum í trolli eru algengar í Barentshafi. Sumir óttast að þær kunni að valda meiri spjöllum en álitið er. Ætla má að fiskurinn verði ringlaður eftir að hafa lent í rist einu sinni og enn ringlaðri eftir því sem hann lendir oftar í rist með stuttu millibili, sem hlýtur að gerast þar sem mörg skip veiða með ristum í trolli á litlu svæði. Þá fara líkurnar að aukast á því að hann hafi ekki orku til að bjarga sér heldur lendi þversum á ristinni, verði innlyksa og drepist. Slíkt hlýtur að leiða til minnkandi meðalstærðar stofnsins á svæðinu. Sumir telja að það sé einmitt þetta sem hefur verið að gerast í Barents- hafinu þar sem hlutfall smáþorsks hefur aukist verulega og heila árganga vantar með öllu. Vitað er að síld drepst eftir að hafa lent í rist tvisvar sinnum. Mikilvægt er að rannsaka afdrif þorsks og ýsu eftir endur- tekin kynni af ristunum. Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla ocj farsceldar á nýju ári. Sæplast hf. • Pósthólf 50 • 620 Dalvík • Sími: 460 5000 • Fax: 460 5001 Netfang: saeplast@saeplast.is • www.saeplast.is

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.