Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Qupperneq 7
5
Pcgar háskóli vor var stofnaður var honum ætlað að vera
niiðstöð visindalii's hjer á landi og að veita embættismanna-
efnum þjóðarinnar vísindalega mentun í fræðigreinum sín-
um, svo að þeir að loknu námi væru færir um að gegna
þeim störfum er þeim yrðu falin. Að því undanteknu, að
gert er ráð fyrir kenslu í færri fræðigreinum hjer en við aðra
háskóla, eru sömu kröfur gerðar til háskóla vors og annara
háskóla. En þó svo sje, vantar mikið á, að háskóli vor sje
svo úr garði gerður, að hann geti jafnast á við erlenda há-
skóla. Hvort sem litið er á kjör kennara háskólans, tölu
þeirra, kjör stúdenta við háskólann, söfn hans og önnur slik
hjálparmeðul, er honum eru nauðsynleg, eða aðrar ytri að-
slæður hans, þá er í þeim efnum alt svo fátæklegt hjer, að
það verður eigi borið saman við aðra háskóla. Enn er há-
skóli vor að eins byrjun, að eins visir til háskóla. Og þelta
er i raun og veru bæði skiljanlegt og afsakanlegt. Jafnfá-
tæku og fámennu þjóðfjelagi, og vort er, er það um megn
að veita menlastofnunum'sinum öll sömu kjör að þessu leyli
og aðrar auðugri og stærri þjóðir megna að bjóða. t*að er
ef til vill nokkuð efasamt, hvort rjett hafi verið að gefa þess-
ari mentastofnun vorri háskólanafn. Sumir hafa óttast að
hann mundi kafna undir því nafni. Þeir menn, er háskólann
stofnuðu, voru samt svo bjartsýnir, að þeir óltuðust það eigi.
Þeir gáfu honum háskólanafn, en með þvi bundu þeir bæði
kennurum háskólans og þjóðinni skyldur á herðar. Kennur-
um háskólans þá skyldu að leggja krafta sina svo vel fram
í starfi þeirra hjer við háskólann, að hjer verði um vísinda-
lif og visindalega starfsemi að ræða, og þjóðinni þá skyldu
að efla háskólann svo og styrkja, að vísindalíf geti þróast
innan vjebanda hans. Pegar dæma á um það, hvort háskóli
vor beri nafn með rjettu, er að líta, ekki á quantitas starfs
hans, hversu mikið er unnið, lieldur á hitt, qualitas starfs-
ins, hversu vel er unnið. Hversu fjölbreytt eða umfangsmikið
starf hans er, skiftir í sjálfu sjer ekki mestu máli. Hversu
margir námsmenn leita hingað, skiftir heldur ekki máli. Há-
skóli vor á ekki, fremur en aðrir háskólar, að vera að eins