Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 16
14
Lög um lánsjóð stúdenta. Stúdentaráð háskólans
sendi háskólaráðinu lög fyrir lánsjóð stúdenta, með tilmæl-
um um, að háskólaráðið kjósi einn fulltrúa í stjórn sjóðsins.
Háskólaráðið samþykti fyrir sitt leyti þetta lagafrumvarp, að
þvi áskildu, að reglugerð sjóðsins verði lögð á sinum tíma
undir samþykki háskólaráðsins. Var rektor því næst kosinn
fulltrúi háskólaráðs í stjórn sjóðsins. (Sjá fylgiskjal III).
Áætlun Sáttmálasjóðs háskóla Islands. Á fundi 17.
desember 1921 samþykti háskólaráðið áætlun íyrir sáttmála-
sjóðinn árið 1922 (sjá fylgiskjal IV).
IV. Kennarar háskólans
♦
og starfsmenn.
Fastir kennarar voru:
í guðfræðisdeild:
Prófessor Haraldur Níelsson, prófessor Sigurður P. Slvert-
sen og dócent Magnús Jónsson.
1 læknadeild:
Prótessor Guðmundur Magnússon, prófessor Guðmundur
Hannesson, dócent Stefán Jónsson og aukakennararnir Andrjes
Fjeldsted augnlæknir, Jón Hjaltalín Sigurðsson hjeraðslæknir,
Ólafur Porsteinsson eyrna- nef- og hálslæknir, Sœmundur
Bjarnhjeðinsson holdsveikralæknir, Trausti Ólafsson efnafræð-
ingur og Vilhelm Bernhöft tannlæknir. Um veturinn veiktist
prófessor Guðmundur Magnússon og var þá Guðmundur
læknir Thoroddsen settur til þess að gegna störfum hans við
háskólann^frá_nýári.