Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 31
r
29
Voru kandídatarnir látnir draga um textana og um röð
þá, er þeir gengu upp í við munnlega og verklega prófið.
Ræðunum skiluðu kandídatarnir að viku liðinni.
Hinir skipuðu prófdómendur, Jón biskup Helgason, dr. theol.,
og sjera Bjarni Jónsson, annar prestur við dómkirkjuna,
dæmdu um úrlausnir í þessu prófi.
Læknadeildin.
I. Upphafsprój.-
1 lok siðara misseris luku 7 stúdentar þvi prófi.
II. Fyrsti hluti embœttisprófs.
Þvi prófi luku 3 stúdenlar i lok síðara misseris.
III. Annar hluti embœllisprófs.
Þvi prófi luku 6 stúdentar í lok síðara misseris.
IV. Priðji hluti embæltisprófs.
I lok fyrra misseris luku 5 stúdentar embættisprófi. Skrif-
lega prófið fór fram dagana 1.—3. febrúar.
Kandídatarnir luku allir prófi 14. febrúar.
Verkefni voru þessi:
I. í lyfiæknisfræði:
Hverjar eru helstu tegundir lungnabólgu hér á landi?
L5rsið einkennum þeirra, aðgreiningu og meðferð.
II. í handlæknisfræði:
Þrengsli (oesophagus), orsakir þeirra, greining, horfur og
meðíerð.
III. í rjettarlæknisfræði:
Hvaða atvik liggja til fosfóreitrunar? Hvernig eru ein-
kenni hennar? Hvaða breytingum veldur hún í lifiærun-
um? Hvernig má gréina þær breytingar frá líkum breyt-
ingum af öðrum orsökum?
I lok siðara misseris (20. júni) lauk 1 stúdent embættisprófi.
Skriflega prófið fór fram dagana 31. mai — 2. júní.
L