Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 54

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 54
52 6. gr. Háskólaráðið hcldur reikning yfir tekjur og gjöld af útgáfu alman- aksins og birtir hann árlega í árbók háskólans, endurskoðaðan með sama hætti sem ársreikning háskólans. 7. gr. Ráðherra ákveður verð almanaka þeirra, er háskólinn gefur út, eftir tillögum háskólaráðs. Verðið skal ákveðið fyrir eitt ár í senn og skal það prentað á almanökunum. 8. gr. Almanök þau, er háskólinn gefur út, skal stimpla áður en þau sjeu afhent, meö stimpli, er háskólaráðið lætur gera. Ekkert almanak má selja eða afhenda með öðrum hætti, hafi það eigi verið stimplað þannig. 9. gr. Ráðherra getur, eftir tillögum háskólaráðs, leyft að gefa út dagatöl og þess konar bækur eða löflur, svo og að flytja inn í landið útlend almanök eða dagatöl. Sá, er fá vill slíkt leyfi, sendi um það skriflega umsókn til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Skal þar skýrt greinilega frá gerð og efni ritsins, eintakafjölda, hvar afhenda eigi ritið, hvort það sje ætlað til sölu eða afhendingar með öðrum hætti og hvert söluverð þess sje, eigi að selja það. Leyfið skal því að eins veitt, að leyfisbeiðandi greiði til háskólans gjald af hverju eintaki. Gjaldið ákveður ráðherra í hvert skifti eftir tillögum háskólaráðs. Hvert eintak rita þeirra, sem þannig er leyft að gefa út eða flytja inn, skal á kostnað leyfisbeiðanda stimplað með stimpli þeim, er getur um í 7. gr., og má eigi afhenda neitt þeirra án þess þau hafi verið stimpluð. 10. gr. Hreinan arð af útgáfu almanaks ár hvert, skaðabætur og sektir fyr- ir brot á einkarjettinum, andvirði upptækra rita og gjöld samkv. 4. og 8. gr. þessarar reglugerðar, skal leggja i sjerstakan sjóð, sem alman- akssjóður heitir, og stjórnar háskólaráðið honum. Skal verja vöxtum sjóðsins, þegar innstæðan þykir hafa vaxið nægilega, til eflingar stærð- fræðisvísindum á íslandi. Háskólaráðið skal árlega birta reikning sjóðsins í árbók háskólans, og skal það, er innstæða sjóðsins er orðin kr. 10000.00 semja skipu- lagsskrá fyrir sjóðinn, er ráðherra staðfesti. (Staðfest af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 25. febr. 1922).

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.