Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 59

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Page 59
fremur kom stúdentaráðið á fót upplýsingaskrifstofu, sem allmikið vár notuð, og aflaði sjer sambanda við svipaðar skrifstofur erlendis. Loks hefir stúdentaráðið á þessu tímabili hrundið í framkvæmd stofnun mötuneytis stúdenla (Mensa academica). Slík hugmynd hafði öðruhvoru verið lauslega á döfinni undanfarin ár, en ekki orðið úr framkvæmdum. En á alpingi 1921 kom fram þingsályktunartillaga um stofnun heimavista við Mentaskólann (sbr. Alþt. 1921, A. þgskj. Nd. 411, og A. þál. 463, bls. 200). Skrifaði þá stjórn stúdentaráðsins, V. Þ. G. og Sveinn Vikingur þinginu og fóru þess á leit, að háskólinn yrði einnig tekin upp i þessa till. Pó þetta væri ekki gert beinlinis, tók nefndin, sem með málið fór, þessu mjög vel og gat framsögum. henn- ar (Jón Porláksson) þess, að hún mælti hið besta með þvi, að þarfir stúdentanna yrðu teknar til álits og undirbúnings, svo fijótt sem mögulegt væri (Alþt. 1921, D. 24). Úr Mentaskólaheimavistunum varð þó ekkert. En sumarið eftir sneri stjórn stúdentaráðsins, eða þeir tveir úr henni, sem í bænum voru, L. G. og V. P. G., sjer til ríkisstjórnar- innar og spurðust fyrir um það, hverjir möguleikar væru á þvi, að hún vildi styrkja stofnun mötuneytis stúdenla, ef unt yrði að öðru leyti að koma þvi upp, þegar sama haustið. Tók þáv. kenslumálaráð- herra, J. Magnússon, mjög vel í málið og sömul. fjármálaráðh. M. Guðmundsson. Var lofað álitlegum styrk, og sumpart láni gegn því, að háskólaráðið legði einnig nokkuð fram, og lofaði það því einnig. Var svo farið að vinna að undirbúningi mötuneytisins, af þessum tveimur fyrnefndu stúdentaráðsmeðlimum og siðar um haustið einnig af Skúla V. Guðjónssyni, eftir að hann kom til bæjarins. Á fundi stúd- entaráðsins 17. okt. 1921 skýrði stjórnin síðan frá gerðum sínum i málinu og voru þær allar samþyktar. A fundi 31. okt. s. á. voru síðan samþ. reglur um Mensa academica (gb. bls. 20—23) og á fundi 9. nóv. 1921 var svo kosin föst forstöðunefnd fyrirtækisins, en stjórnin skilaði því af sjer, og hlutu kosningu Björn Árnason, stud. jur., Lúðvik Guð- mundsson stud. med. og Skúli V. Guðjónsson stud. med. En annars hafði mötuneytið tekið til starfa 4. nóvember, i húsinu nr. 2 í Lækjar- götu og var ráðskona ráðin, frk. Ólafia Hákonardóttir. Pátttakendur voru fyrst um 40. Pegar mötuneytið var opnað, hafði stúdentaráðið boðið kennurum háskólans, landsstjórninni og nokkrum blaðamönn- um að skoða húsnæðið o. s. frv. Var þar dálítil samdrykkja, ræðu- höld o. s. frv. og töluðu þar form. stúdentaráðsins V. P. G., atvinnu- málaráðherra Pjetur Jónsson og rektor háskólans, prófessor Ól. L. í stúdentaráðinu áttu sæti á þessu tímabili, kosnir 11. des. 1920: fyrir guðfræðisdeild: Porst. Jóhannesson, Sveinn Víkingur, fyrir læknadeild: Lúðvik Guðmundsson, Friðrik Björnsson, fyrir lagadeild: Stefán J. Stefánsson, (seinna Gustav A. Jónasson í hans stað), Magnús 8

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.