Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1922, Síða 62
60
tilhlutun stúdentaráðsins var haldinn fundur i «Mensa» 8. desbr. 1921.
A fund þenna voru boðaðar stjórnir ýmsra fjelaga og skóla hjer i bæ.
Var þar rætt um fyrirkomulag stúdentaskifta við önnur lönd í fram-
tiðinni. Kom það fram á fundinum, að heppilegast væri að stúdenta-
ráðið hefði allar framkvæmdir i því máli, og fulltrúar hinna ýmsu
fjelaga hjetu fulltingi sínu. — Stúdentaráðinu var strax ljósf, hversu
miklum erflðleikum eru bundin stúdentaskifti til náms yfir veturinn.
Var því afráðið, að snúa sjer fyrst um sinn að stúdentaskiftum til
skammrar dvalar í sumarleyfi, en jafnframt unnið að hinum svo sem
hægt var. Skömmu eftir nýár voru hafin brjefaskifti og simskeyta við
prófessor H. Kóht í Kristjaniu, um stúdentaskifti við Noreg. Seinna
var kosin sjerstök nefnd við háskólann i Kristjaníu, til að annast mál-
ið að öllu leyti fyrir Norðmanna hönd. Svo fór að 4 norskir stúdent-
ar skyldu koma til íslands og höfðu þeim verið útvegaðir dvalarstaðir
með þvi móti, að frá þvi er þeir kæmu hjer til lands og þar til þeir
færu, yrði dvölin þeim að öllu kostnaðarlaus. Sömu hlunnindum átti
stúdentaráðið völ á, fyrir jafnmarga ísl. stúdenta í Noregi. Pessi skifti
skyldu standa yfir sumarmánuði þrjá. Vegna veikinda og annars komu
að eins tveir Norðmenn og tveir isl. stúdentar dvöldu í Noregi. Eftir
norskum blöðum að dæma, hafa þeir, norslcu stúdentarnir, verið mjög
ánægðir með förina. Og hyggja Norðmenn á framkvæmdir miklar um
stúdentaskiftin í framtíðinni. Ágætismaður nokkur, norskur, próf.
Paasche hefir gefið fje, málinu tii stuðnings, og háskólanefndin norska
mun sækja um fjárstyrk úr rikissjóði í Noregi til stúdentaskifta við
ísland. — Stúdentaráðið er fegið þvi, hversu giftusamlega hefir tekist
með þetta mál og mun leggja alt kapp á, að það verði íslenskum stúd-
entum til sóma, á meðan það heldur uppi framkvæmdum um málið
af íslands hálfu. — Seinni hluta vetrar var skrifað til allra skipafje-
laga, sem höfðu skip i föstum förum til íslands, og óskað eftir afslætti
á fargjaldi stúdenta. Eimskipafjelag ísl. hjet öllum stúdentum nær
helmings afslætti á fargjaldi i ferðum til náms eða stúdentaskifta milli
íslands og annara landa. «Bergenska fjelagið» hjet 33°/0 afslætti fyrir
þá, er færu í stúdentaskiftum til Noregs. Önnur fjelög gáfu ekki ákveð-
ið svar, en sum nokkurn ádrátt. Petta voru enn góð atvik i stúdenta-
skiftamálinu.
Ýmsum «tslandsvinum» og stúdendastofnunum i Englandi var skrif-
að um stúdentaskifti við England. Árangur var enginn á þessu sumri,
cn það eru góðar liorfur á, að skiftin takist i náinni framtið.
í júlimánuði siðastl. kom hingað fulltrúi frá «Danske Studerendes
Internationale Komitén. Skyldi hann kynna sjer hagi stúdenta og mál-
efni hjer, og ráðgast við stúdentaráðið um meira samband milli
danskra og islenskra stúdenta. Peim fundum Iauk svo, að ákveðið var