Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1943, Side 8
6
1911 voru allmargir stúdentar húsnæðislausir, cr skólinn
byrjaði siðasta haust. Var nokkrum þeirra fengið húsnæði
til svefns og ibúðar í kjallara hússins, og sváfu um 20
stúdentar þar.
Nýstofnuðum húsmæðrakennaraskóla var íeyft liúsnæði
næsta vetur i norðurkjallara hyggingarinnar.
Siðastiiðinn vetur skýrði setuliðsstjórnin frá því, að hún
myndi ekki láta stúdentagarðinn lausan fvrst um sinn. Ákvað
þá stúdentaráð að reisa nýjan stúdentagarð á liáskólalóð-
inni. Er þetta djarft teflt, en hamingjan er stundum með
hugrökkum. Byggingin er teiknuð af Sigurði Guðmundssvni
og Eiríki Einarssyni arkitektum og liefur gengið vel, það
sem komið er, en það tefur vafalaust mikið, að hitunartæki
fóru í sjóinn á leið Iiingað til landsins. Húsið cr nú komið
undir þak og ér Iiið myndarlegasta ytra.
Háskólinn tók í vetur á leigu hús, sem Reykjavíkurbær
á í Tjarnargötu, og hefur látið hrevta þvi og úthúa það sem
kvikmyndahús. Vinnan liófst í nóv. 1941. Sýningar hyrjuðu
8. ágúst. Fyrirtækið er eign Sáttmálasjóðs og selt á stofn ti!
þess að auka tekjur þessa aðalsjóðs okkar, en það er hrýn
nauðsyn, að háskólinn fái meira fé til hókakaupa og styrkt-
arstarfsemi fvrir yngri vísinda- og fræðimenn. Skoðanir
manna um þessa ráðstöfun háskólaráðs hafa orðið allskiptar,
og háskólinn lilotið ámæli fyrir frá ýmsum. En virðist það
ekki að öllu leyti eðlilegra, að arður af slíkri starfsemi gangi
til þjóðþrifa, lieldur en að hann lendi í vösum sárfárra ein-
staklinga? Þessi framkvæmd varð miklu dýrari en áætlað
var í byrjun, en það verður víst reynsla flestra, sem reyna
að hyggja á þessum síðustu og verstu tímum.
Náttúrufræðifélagið fór fram á það við háskólaráð, að
það heimilaði félaginu að reisa hús undir náttúrugripasafn
á háskólalóðinni. Samþykkti háskólaráðið að levfa þetta.
Samþykkt var s. I. vor að koma á nú i vetur námsskeiðum
fyrir starfandi verzlunarmenn, er fari fram siðdegis. Náms-
greinar verða: Bókfærsla, rekstrarhagfræði, enska og þýzka.