Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1943, Qupperneq 90
88
Lög um brevting á lögum nr. 44 19. júní 1933
um stofnun happdrættis fvrir íslancl.
1. gr.
a. B-liður 1. gr. laga nr. 14, 19. júni 1933, liljóði svo:
Iilutina má selja bæði í heilu lagi og hálfu og enn freniur skipta
þeim í fjórðunga, ef reynslan sýnir, að það sé hentugra. Iðgjald
fyrir hvern hlut ákveður fjármálaráðherra, að fengnúm tillögum
happdrættisráðs og happdrættisstjórnar háskólans.
b. Á undan tölunni „5000“ i c-lið sönni lagagreinar komi orðin: ekki
færri en.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi, og jafnframt falla úr gihli lög nr. 48,
27. júní 1941, um breyting á lögum nr. 44, 19. júní 1933, um stofnun happ-
drættis fyrir ísland.
Brevting á Skipulagsskrá fvrir Minningarsjóð
Davíðs Schevings Thorsteinssonar.
Niðurlag 2. málsgreinar 3. greinar, frá orðunum: „Nægi vextir sjóðs-
ins ..“ orðast svo: Þegar vextir sjóðsins nægja til þess að greiða
leigu fyrir 2 herbergi, skal heimspekisdeild Háskóla íslands veita stú-
dent í íslenzkum fræðum ókeypis vist á sama hátt, í samráði við Garð-
stjórn. Nægi vaxtatekjur sjóðsins til þess að greiða leigu fyrir 3 lier-
bergi, skal greiða fyrir annan læknastúdent, og þegar sjóðurinn getur
greitt fyrir 4 herbergi, skal annar stúdent í íslenzkum fræðum verða
þess aðnjótandi o. s. frv.
Útdráttur úr fjárlögum fyrir 1943.
Háskólinn: gr. B. I.
1. Laun ............................................ kr. 137000.00
Þar af til Júlíusar Sigurjónssonar og Kristins Ste-
fánssonar, 2400 til livors.
2. Til kennslu í augnlækningum (Kjartan Ólafsson) .. — 1000.00
3. Til kennslu í réttarlæknisfræði ................... — 1000.00
4. Til kennslu í söng ................................ — 800.00
5. Til móttöku erlendra vísindamanna ................ — 2000.00
6. Til bókavörzlu ................................ — 6000.00
7. Til rannsóknarstofu í líffæra- og' lifeðlisfræði . — 11000.00 -
8. Til áhaldakaupa handa læknadeild háskólans ........ — 5000.00
Flyt kr. 163800.00