Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Page 7
5
í stað Jóns heitins Jóhannessonar, og nú fyrir fáum dögum,
hinn 18. okt., var dr. Hreinn Benediktsson skipaður prófessor
frá 1. þ. m. að telja, í stað dr. Alexanders Jóhannessonar, sem
lætur af embætti, en hann varð sjötugur siðastliðið sumar.
Um leið og ég árna hinum nýju kennurum heilla í starfi sínu,
vil ég í nafni háskólans þakka dr. Alexander Jóhannessyni langt
og heilladrjúgt starf í þágu heimspekideildarinnar og háskólans
í heild. Dr. Alexander hóf ungur kennslu í háskólanum, fyrst
sem aukakennari, en því næst sem dósent og loks prófessor í
íslenzku og íslenzkri málsögu. Hann hefir sem kunnugt er unn-
ið þrekvirki í fræðigrein sinni. En í sögu háskóla vors verður
hans ekki síður minnzt sem stórhuga leiðtoga og framkvæmda-
manns. Það leikur ekki á tveimur tungum, að háskólinn í nú-
verandi mynd sinni á honum meira að þakka en öðrum, sem
farið hafa með mál hans fyrr og síðar, þótt vitaskuld hafi ýms-
ir ágætir menn átt þar drjúgan hlut að. Mér þykir rétt og skylt
að minnast þessa nú, er dr. Alexander lætur af embætti. En
um leið og ég þakka honum starf sitt hér á liðnum árum og
óska honum heilla á ókomnum tíma, vil ég endurtaka það, sem
ég lét í ljósi þegar annar ágætur fræðimaður og forustumaður
háskóla vors, dr. Ólafur Lárusson, lét af embætti fyrir aldurs
sakir, að ég tel mikils vert fyrir háskólann, að slíkir menn,
sem um árabil hafa verið og eru beztu sérfræðingar þjóðar
vorrar í ýmsum greinum fræða sinna, mætti enn um hríð, með-
an heilsa og kraftar leyfa, vera tengdir háskólanum með þeim
hætti, að nöfn þeirra stæði áfram í kennsluskrá háskólans,
þannig að þeir gæti eftir ástæðum haldið áfram að kenna vissa
þætti í fræðigrein sinni, enda haldi þeir fullum launum sínum.
Þetta fyrirkomulag gæti orðið hagkvæmt öllum aðilum, kenn-
urum sjálfum, viðkomandi háskóladeild og sjálfu ríkinu, sem
fengi enn um sinn not hinna hæfustu starfskrafta í þágu háskól-
ans gegn þeim tiltölulega litla mun sem verður á hæstu eftir-
launum og fullum launum slíkra manna-
Eins og marga rekur minni til, andaðist umsjónarmaður há-
skólans, Óskar Bjarnasen, 22. okt. í fyrra. Óskar Bjarnasen
gegndi umsjónarmannsstarfi hér frá því háskólinn fluttist í