Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Qupperneq 10
8
lega á næsta ári. Bókasafnið er í sífelldri og vaxandi fjárþröng
vegna bókakaupa og óhjákvæmilegt að fá aukna aðstoð við
gæzlu og hirðingu safnsins. Nauðsynlegt er líka að hækka að
mun utanfararstyrki kandídata, vegna dýrleika á fargjöldum
og erlendum gjaldeyri, sem vaxið hefir stórum á þessu ári.
Hér hefir orðið að skera við nögl, reynt að halda í horfinu,
en ekki hrokkið til, fremur en nú var frá skýrt. En hér er í
fleiri horn að líta. Vegna sívaxandi samskipta við aðrar þjóðir
og erlendar mennta- og menningarstofnanir, er óhjákvæmi-
legt, að háskólakennarar sæki utan til fræðiiðkana, á mót og
fundi visindamanna, til erindaflutnings við erlenda háskóla
o. s. frv. Þegar ég tók við stjórn háskólans fyrir 4 árum, tjáði
ég þáverandi menntamálaráðherra nauðsyn þess, að háskól-
anum yrði gert fært að sinna þessu hlutverki, sem augljóslega
fór vaxandi. Var því máli vel tekið og síðan hefir háskólinn
notið stuðnings frá menntamálaráðuneytinu að því leyti sem
framlag Sáttmálasjóðs hrökk ekki til. Með þessum hætti hefir
tekizt að gegna brýnustu erindum undir þessa grein. Á þessu
ári hafa utanfarir háskólakennara á ráðstefnur og til erinda-
flutnings orðið sem hér segir: Prófessor Símon Jóh. Ágústsson
sótti 12. alþjóðamót heimspekinga í Feneyjum í sept., próf. Níels
Dungal sótti krabbameinsþing í London, próf. Sigurður Samú-
elsson sótti læknaþing í Briissel, próf. Leifur Ásgeirsson sótti
mót stærðfræðinga í Edinborg, próf. Ármann Snævarr sótti mót
lögfræðinga í Kaupmannahöfn. Pi’ófessorarnir dr. Halldór Hall-
dórsson, dr. Júlíus Sigui’jónsson og dr. Matthías Jónasson dvöld-
ust um hríð erlendis í sumar með styi’k af Sáttmálasjóði.
Á þessu ári hefir loksins komizt ofui’lítil hreyfing á bygg-
ingamál háskólans. Ég ræddi þessi mál nokkuð ýtai’lega á sið-
ustu háskólahátíð, fyrst og fremst aðkallandi þörf háskólans
og stofnana hans fyrir nýtt og aukið húsnæði og skal ekki end-
urtaka það hér. Ég vil aðeins drepa stuttlega á framkvæmdir,
sem lokið hefir verið á síðasta ári eða byrjað hefir verið á.
Kalla má, að lokið sé að ganga frá húsnæði i kjallara háskóla-
hússins vegna kennslu í lyfjafræði lyfsala og lifeðlisfi’æði. Virð-
ist sú framkvæmd hafa heppnazt vel og verður að henni mikið