Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Síða 12
10
gesta. Allur þorri stúdentanna á þess ekki kost að taka þátt í
slíkri samkomu sem þessari. Er þá það ótalið, sem ekki varðar
minnstu. Þetta þrönga húsnæði setur slíkum samkomum sem
þessari þær skorður, að lítil sem engin tök eru að breyta til
um snið og innihald, sem þó er æskilegt og raunar nauðsyn-
legt. Eftir fá ár, vorið 1961, verður háskólinn hálfrar aldar
gamall. Það er ósk mín og von, að unnt verði að minnast þessa
afmælis í nýjum húsakynnum, svo rúmgóðum, að hin milda
móðir, háskólinn, geti rúmað þar öll sín börn, vini sína og
styrktarmenn, sem heiðra vilja hann með návist sinni. Þá er
fengin umgerð, sem hæfir reglulegri háskólahátið, og ég efast
ekki um, að takast muni að gefa slíkri samkomu svip og inni-
hald við hæfi.
Á kennsluári því, sem nú er að hefjast, hafa 182 stúdentar
innritazt í háskólann, og skiptast þeir þannig á milli deildanna:
guðfræði 1, læknisfræði 25, tannlækningar 5, lyfjafræði lyfsala
1, lögfræði 31, viðskiptafræði 12, heimspekideild 97 og verk-
fræði 10.
Tala stúdenta í deildum háskólans er nú sem hér segir: í guð-
fræðideild 27, í læknadeild 227, þar af 18 í tannlækningum og
6 í lyfjafræði lyfsala, í lagadeild 137, i viðskiptadeild 78, í heim-
spekideild 280 og í verkfræðideild 40- Stúdentar við háskólann
eru því alls 789.
Árið sem leið útskrifuðust úr deildum skólans 73 kandídatar:
4 úr guðfræðideild, 20 úr læknadeild, 3 úr tannlæknadeild, 11
úr lagadeild, 17 úr viðskiptadeild, 11 úr heimspekideild, þar af
5 í íslenzkum fræðum, 4 luku B.A.-prófi og 2 erlendir stúdent-
ar luku prófi í íslenzku; loks luku 7 stúdentar fyrra hluta prófi
úr verkfræðideild.
1 haust voru 50 ár liðin frá því að Lagaskóli Islands tók til
starfa. Þegar Háskóli Islands var stofnaður, var Lagaskólinn
gerður að deild í háskólanum, nemendur hans gengu inn í laga-
deildina og kennararnir urðu prófessorar. Lagaskóli Islands
starfaði því aðeins þrjú ár og útskrifaði enga kandídata. En
fyrstu lögfræðingarnir, sem skrifuðust út frá Háskóla Islands,
voru raunar lærisveinar Lagaskólans og tóku embættispróf sitt