Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Qupperneq 13
11
samkvæmt reglugerð hans. Þetta fyrsta íslenzka lagapróf fór
fram vorið 1912. Fjórir stúdentar gengu undir prófið. Af þeim
er aðeins einn á lífi, dr. jur. Ólafur Lárusson. Þessara merku
tímamóta, hálfrar aldar afmælis innlendrar lagakennslu, hefir
lítið verið minnzt utan háskólans og í háskólanum aðeins
innan sjálfrar lagadeildarinnar, með þeim hætti, að þar hafa
verið flutt nokkur erindi af þessu tilefni. Og hefir langt mál
flutt verið af minna tilefni en þessu, þótt eigi verði það að
þessu sinni gert. Ég vil aðeins minna á það hér við þessi
tímamót í sögu íslenzkrar lagakennslu, sem sízt má gleyma, en
það er sú þýðing, sem Lagaskólinn, lagadeildin og prófessor-
ar hennar hafa haft til umbóta á íslenzku lagamáli og sjálf-
sagt lika á sjálfa lagasetninguna í landi voru um hálfrar aldar
bil. Eftir stuttan tíma, þrjú ár, mun Háskóli Islands minnast
hálfrar aldar afmælis síns. Við þau tímamót er rétt að staldra
við, horfa yfir farinn veg og gera sér grein fyrir því, sem á
hefir unnizt og fram hefir þokazt. En hversu sem um þetta
verður dæmt, ætla ég, að lagadeildin megi vel una sínum hlut.
Þegar hin innlenda lagakennsla hófst, var að mörgu leyti mið-
ur vel ástatt í þessari fræðigrein og hafði svo lengi verið- Ekki
svo að skilja, að þjóð vor ætti þá ekki og hefði reyndar löng-
um átt snjalla lögfræðinga, en lagasetning öll og ekki sízt laga-
málið bar glögg merki erlendrar yfirdrottnunar og áhrifa, sem
í sjálfu sér var næsta eðlilegt, en engu þolanlegra þrátt fyrir
það. Hér er löngu gagnger breyting á orðin og þá breytingu
má fyrst og fremst þakka mönnum, sem starfað hafa við há-
skólann í lagadeild hans. Ég vil hér til nefna menn eins og dr.
Einar Arnórsson og dr. Ólaf Lárusson úr hópi hinna eldri laga-
kennara, sem sterkastan svip hafa sett á lagadeildina, starf
hennar allt um hálfrar aldar bil. Hinir yngri menn, lærisveinar
deildarinnar og kennarar úr þeirra hópi, hafa hér dyggilega
fylgt merki og munu áreiðanlega bera það hátt um komandi ár.
Ég vil óska lagadeildinni til hamingju með unnin afrek og árna
henni allra heilla í framtíð.
Lagadeildin hefir af tilefni 50 ára afmælisins ákveðið við
þetta tækifæri að neyta þess réttar, sem lög heimila deildum