Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Síða 14
12
háskólans, til þess að sæma prófessor Ólaf Lárusson nafnbót-
inni dr. juris honoris causa. Forseti lagadeildar, prófessor Ólafur
Jóhannesson, mun nú lesa upp greinargerð lagadeildarinnar
fyrir þessari ákvörðun. }
Prófessor Ólafur Jóhannesson tekur nú til máls.
í tilefni af fimmtíu ára lagakennslu hér á landi hefir laga-
og viðskiptadeild háskólans samþykkt í einu hljóði að sæma
fyrrverandi prófessor Ólaf Lárusson nafnbótinni doctor juris
honoris causa. Prófessor Ólafur Lárusson hefir verið tengdur
lagakennslu lengst af frá því að lagaskólinn tók til starfa fyrir
fimmtiu árum, fyrst sem nemandi og síðar sem kennari. Hefir
prófessor Ólafur verið kennari við lagadeildina lengur en nokk-
ur annar eða um nær fjóra áratugi samtals. Hefir hann á þeim
tíma brautskráð fleiri lögfræðinga en nokkur annar lagapró-
fessor við Háskóla Islands og er kennari langflestra þeirra lög-
fræðinga, sem nú eru starfandi hér á landi.
Kennslustörf sín rækti prófessor Ólafur jafnan af alúð og
kostgæfni og er kennsla hans rómuð af nemendum hans. En
íslenzkir lögfræðingar eiga honum eigi aðeins þökk að gjalda
fyrir kennslustörf heldur og einnig fyrir margvísleg ritstörf
hans. Hefir prófessor Ólafur samið margar kennslubækur og
önnur rit um lögfræðileg efni, einkanlega um fjármunarétt og
réttarsögu. Höfuðrit hans í fjármunarétti eru Eignarréttur,
Kaflar úr kröfurétti, Víxlar og tékkar og Sjóréttur. Um réttar-
sögu hefir prófessor Ólafur ritað tvær bækur, Yfirlit um íslenzka
réttarsögu og ritið Grágás og lögbækurnar. Hafa sum þessara
rita verið gefin út oftar en einu sinni. Auk þessa hefir prófessor
Ólafur ritað fjölmargar ritgerðir um afmörkuð efni á sviði fjár-
munaréttar og réttarsögu, er birzt hafa í innlendum og erlend-
um tímaritum- Enn fremur hefir hann séð um útgáfu hinna
fornu lögbóka og lagasafnsins. öll ritverk prófessors Ólafs Lár-
ussonar einkennast af vísindalegri nákvæmni og einstakri vand-
virkni. Mun það sammæli allra, er til þekkja, að rit prófessors
Ólafs séu meðal hins merkasta, sem ritað hefir verið um islenzk
lögvísindi, bæði fyrr og síðar.
A