Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Qupperneq 15
13
Af störfum prófessors Ólafs Lárussonar utan kennslu og rit-
starfa má geta þess, að hann hefir oft og lengi gegnt varadóm-
arastörfum í Hæstarétti. Enn fremur hefir hann samið ýmis
merk lagafrumvorp eða verið með í ráðum um samningu þeirra.
Fyrir utan lögfræðistörf sín er prófessor Ólafur víðkunnur fyrir
rannsóknir sínar og ritstörf um íslenzk fræði, einkanlega um
íslenzka byggðasögu, og hefir hann hlotið fyrir þau mikla við-
urkenningu af hálfu heimspekideildar Háskóla Islands.
Með kennslu sinni, lögfræðiritum og margvíslegum öðrum
lögfræðistörfum hefir prófessor Ólafur Lárusson unnið íslenzkri
lögfræði ómetanlegt gagn. Hefir hann með þeim, öðrum mönn-
um fremur, mótað réttarhugmyndir íslenzkra lögfræðinga sið-
ustu áratugina og haft heillarík áhrif á réttarþróun í landinu.
Laga- og viðskiptadeild vill sýna honum virðingu sína og þökk
fyrir hið mikla og ágæta starf, sem hann hefir af hendi leyst,
með því að veita honum þann heiður, sem hún ræður yfir
mestum.
Samkvæmt ályktun laga- og viðskiptadeildar, sem háskóla-
ráðið hefir samþykkt, lýsi ég prófessor Ólaf Lárusson réttilega
kjörinn doctor juris honoris causa með þeim réttindum, sem
þeirri nafnbót fylgja. Qvod felix faustumque sit.
Ég sný máli mínu til ykkar, nýstúdentar. En innan stundar
mun ég afhenda ykkur háskólaborgarabréf ykkar, svo sem venja
er til. Þar með er staðfestur sáttmáli milli ykkar og háskólans
á þann veg, að þið takið við þeim réttindum, sem háskólinn
og háskólanámið veitir, en gangist hins vegar undir þær reglur
og lög, sem hér heyra til. Þetta er einföld athöfn en eigi að
síður þýðingarmikil. Héðan af, meðan þið dveljist hér, á háskól-
inn nokkuð af sæmd sinni undir trúnaði ykkar. Og minnist þess,
að um leið og þið gerið veg skólans mikinn, haldið uppi heiðri
hans í öllum greinum, vex ykkar eigin sæmd að sama hófi.
Hér mui'uð þið eyða nokkrum árum, sem verða ykkar beztu
þroskaár, ef allt fer með felldu, ár sem þið eigið eftir að minn-
ast með viðkvæmni, gleði og stolti síðar á ævinni, ár náms og