Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Blaðsíða 18
16
heyja ykkur þekkingu í sem flestum greinum. Þekkingin er
móðir vizkunnar og verður sízt uppnæm fyrir fölskum rök-
semdum. Ykkur er hollt og nauðsynlegt að stunda nám ykkar
af reglusemi og kostgæfni. En hér þarf fleira við. Enginn há-
skólaborgari, enginn menntamaður, má láta hjá líða að kynna
sér innlendar og erlendar bókmenntir, tónlist og aðrar listir,
svo sem kostur er frekast á. Þegar þið hafið gert ykkur þetta
ljóst, munuð þið líka komast að raun um, að fátt er ykkur dýr-
mætara en tíminn, sem þið hafið til umráða. Gætið hans vel
og notið hann sem bezt. Látið ykkur annt um það, sem þið les-
ið og lærið og ykkur þykir miklu varða. Njótið þess með fé-
lögum ykkar, brjótið það til mergjar eftir föngum og verið
vandlát. Viðfangsefnið er stórt, en hér er til mikils að vinna.
Auðvitað þurfið þið líka að skemmta ykkur. Það er sjálfsagt.
En verið vandlát einnig í þessu efni. Gætið vel að því, hvað
ykkur er boðið í skemmtunarnafni. Sumt af því er vissulega
ekki mönnum bjóðandi.
Við lifum á viðsjárverðum timum- Margar blikur eru á lofti
og vandséð, hversu úr greiðist. Þjóð vor á í harðri deilu við eitt
af stórveldum heimsins. Hér eigast ójafnir leik við, en um af-
stöðu okkar er enginn vafi, enda eru brýnustu hagsmunir þjóð-
arinnar nú og í framtíð í veði. Á þessu ári eru 40 ár liðin síðan
þjóð vor endurheimti fullveldi sitt, eftir 70 ára harða og oft
tvísýna baráttu. Þeirrar baráttu skulum við minnug vera. Áður
henni lyki höfðu tvær kynslóðir til grafar gengið. Svo langvinn
var hún og lengst af án árangurs, sem til hvatningar mætti
verða. En af slíkri staðfestu var hún háð, að þess verður jafnan
með stolti minnzt, að aldrei kom til mála að slá undan. Þvert
á móti var merkinu lyft hærra við hvern áfanga. Jafnvel ósigr-
arnir urðu að hvatningu. Og svo mun enn verða. Einhuga þjóð
sigrar alla örðugleika. En svo nauðsynlegt sem það er að standa
saman í viðskiptum við aðrar þjóðir, er okkur ekki minni
nauðsyn að gæta hófs í þeim málum, sem við eigumst sjálfir
við. Síðustu 40 ár hafa verið viðburðarík þegar til innanlands-
málanna er litið. Ótrúlega miklu hefir fram þokað um ýmsa
hagi þjóðar vorrar þessi ár. Svo er fyrir að þakka. En eitt er