Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Blaðsíða 70
68
öllum nýjungum í fræðigrein sinni, las mikið og ritaði talsvert í
innlend og erlend læknarit. Hann fór oft utan til funda og
fræðsluleitar meðal erlendra stéttarbræðra.
Fáum mun tjl fulls kunnugt hið mikla starf Hannesar í kyn-
sjúkdómavörnulrn þessa lands. Hann var hógvær maður, sem lét
lítið yfir sér dg kunni vel að meta það traust, er sjúklingar
sýndu, er þeir ópnuðu honum hug sinn allan varðandi sjúkdóm
sinn og sjúkdómsorsakir. Hygg ég, að eigi hafi aðrir læknar
hérlendis eða erlendis komizt lengra en hann í að rekja orsakir
smitana og ná fullum trúnaði sjúklinga sinna, en slíkt er fyrsta
skilyrði árangursríks starfs á þessu sviði. Hin prúða og rólega
framkoma hans samfara hispursleysi og ágætri athyglisgáfu
auðvelduðu honum starfið, svo að óvenjulegur árangur varð af.
Hannes var mjög fjölhæfur maður sem hann og átti kyn til.
Hann var hagur vel og átti mörg áhugamál. Sumarhús hans i
Fossvogi og trjálundurinn þar bera um þetta ljós vitni, en öll
mannvirki þar voru unnin af honum sjálfum og konu hans.
Hannes var tæplega meðalmaður á hæð, grannholda, ljós yfir-
litum, bláeygur, sviphreinn og fríður sýnum. Hvar sem hann fór
vakti hin ljúfa og prúðmannlega framkoma hans athygli. Hann
var hæggerður en þó skapmikill og hélt fast á sínum málstað,
hver sem í hlut átti. Hann var drengur góður og allra manna
sanngjarnastur. Hlédrægur var hann, en átti þó fjölmennan
vinahóp, því trygglyndur var hann mjög. í viðræðum var hann
skemmtilegur, oft orðheppinn og gamansamur og kunni mjög
vel að koma fyrir sig orði. Hann var snyrtimenni hið mesta.
Hann var kvæntur Valgerði Björnsdóttur Sigfússonar frá
Grund í Svarfaðardal og konu hans Lilju Daníelsdóttur. Eru
börn þeirra fjögur: Leifur, verkfræðingur í Reykjavík, Valgerð-
ur og Lína Lilja, báðar stúdentar og giftar einnig í Reykjavík,
og Helga, nemandi í Menntaskólanum. Dvelur hún í heima-
húsum.
Þungur harmur er kveðinn að ekkju og börnum Hannesar
læknis við hið ótímabæra fráfall hans. Er mikið skarð fyrir
skildi á heimilinu, því Hannes var óvenjulegur heimilisfaðir.