Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Qupperneq 93
91
Almennir stúdentafundir.
Almennir stúdentafundir voru 3 haldnir, um landhelgismálið, dvöl
varnarliðs hér á landi og lög Bóksölu stúdenta.
1) Landhelgismáliö var tekið fyrir á almennum fundi háskóla-
stúdenta laugardaginn 15. nóvember 1958, að und^ngengnum tals-
verðum umræðum um málið í stúdentaráði. Á fundinum var sam-
þykkt tillaga, þar sem m. a. voru fordæmd harðlega ofbeldisverk
brezkra herskipa í íslenzkri lögsögu.
2) Varnarmálin voru tekin til umræðu á almennum stúdentafundi
þriðjudaginn 3. marz 1959. Fundurinn var haldinn vegna tilmæla frá
20 stúdentum, og urðu á honum miklar umræður, allsnarpar á köfl-
um, enda skoðanir skiptar á umræðuefninu. Að lokum var samþykkt
áskorun um brottför varnarliðsins eða að efnt yrði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið. Þá var lýst yfir samstöðu við vestrænar lýðræðis-
þjóðir og frelsishugsjónir þeirra. Var tillagan samþykkt með um 70
atkvæðum, en andstæðingar hennar höfðu þá flestir gengið af fundi.
3) Lög um Bóksölu stúdenta voru, samkv. ákvæðum 18. gr. laga
SHÍ, borin undir aimennan stúdentafund, og var sá fundur haldinn
fimmtudaginn 22. okt. 1959. Var frumvarp til laganna samþykkt þar,
sjá þátt um Bóksölu stúdenta hér síðar.
Hátíðahöld og skemmtanir.
1. desember. Það hefir um árabil verið eitt af fyrstu verkefnum
nýkjörins stúdentaráðs að undirbúa hátíðahöld fullveldisdagsins. Svo
var einnig í þetta sinn. Var samþykkt að helga hátíðahöldin 40 ára
afmæli fullveldis íslands, og yrði um leið lögð eftir föngum áherzla
á landhelgismálið og handritamálið.
Fullveldishátíðin fór fram með eftirfarandi hætti:
Kl. 11.00. Guðsþjónusta í kapellu háskólans. Prófessor Sigurbjörn
Einarsson prédikaði. Organisti var Jón ísleifsson. Að öðru leyti sá
Félag guðfræðinema um guðsþjónustuna.
Kl. 13,30. Pétur Ottesen, alþingismaður, flutti aðalhátíðarræðu dags-
ins úr útvarpssal.
Kl. 15,30. Hátíðahald í hátíðasal háskólans: 1. Ávarp: Ólafur Eg-
ilsson, stud. jur., form. SHÍ. 2. Stúdentakórinn söng nokkur lög. 3.
Ræða: Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri. 4. 1. des. 1918: Samfelld dag-
skrá, sem Gils Guðmundsson, rithöfundur, tók saman. Leikfélag stúd-
enta sá um flutning dagskrárinnar. Brynja Benediktsdóttir, Bolli
Gústavsson, Bernharður Guðmundsson, Jakob Möller og Tryggvi Gísla-
son fluttu. 5. Einsöngur. Guðrún Tómasdóttir söng með aðstoð Magn-
úsar Bl. Jóhannssonar.
Kl. 18,30. Hóf að Hótel Borg. Dr. Einar Ól. Sveinsson, prófessor,