Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Síða 96
94
var endurreist Leikfélag stúdenta. í stjórn leikfélagsins voru kjörin
Brynja Benediktsdóttir, Jakob Möller, Tryggvi Gíslason, Reynir Valdi-
marsson og Gunnar O. Sigurðsson. Ekki hefir enn orðið úr sýningum,
en tveir stúdentar, þeir Gylfi Baldursson og Jakob Möller, eru langt
komnir með þýðingu á leikriti eftir Sam. Beckett, og er sú þýðing
gerð á vegum stjórnar félagsins.
Biðskýli fyrir stúdenta.
Nú fyrir skemmstu samþykkti SHÍ að fara þess á leit við bæjar-
yfirvöldin, að sett yrði upp biðskýli fyrir stúdenta nálægt Görðun-
um, og voru taldir möguleikar á því, að SHÍ gæti hagnazt á rekstri
slíks skýlis.
Styrkur háskólaráðs.
Fjárframlag háskólaráðs til félagsstarfsemi stúdenta hækkaði á
árinu úr 10.000,00 kr. í 15.000,00 kr., og kom sú aukning í mjög góð-
ar þarfir. Skulu því færðar beztu þakkir fyrir þennan skilning á fjár-
hagserfiðleikum stúdenta.
Skák og bridge.
Á síðastliðnum vetri var efnt til sveitakeppni í skák milli deilda
skólans. Sex sveitir tóku þátt, 2 frá lagadeild, og ein frá læknadeild,
íslenzkudeild, viðskiptadeild og verkfræðideild. Stóð keppnin yfir í
tvö kvöld og voru tefldar 5 umferðir. Úrslit urðu þau, að fyrri sveit
lagadeildar bar glæsilega sigur úr býtum, en sveitina skipuðu þeir
Friðrik Ólafsson, Árni G. Finnsson, Grétar Haraldsson og Ásgeir Frið-
jónsson.
Þá var efnt til hraðskákmóts, sem 24 stúdentar tóku þátt í. Teflt
var eftir Monrad-kerfi, alls 9 umferðir, og fengu þessir flesta vinn-
inga: 1. Stefán Briem 7 v., 2. Bragi Þorbergsson 6y2 v., 3. Grétar
Haraldsson 6y2 v., og 4. Grétar Áss Sigurðsson 6y2 vinning.
Báðar þær skákkeppnir, sem hér hefir verið getið, fóru fram í setu-
stofu Gamla Garðs, og voru áhorfendur nokkrir.
Á sama stað fór einnig fram taflkynning á vegum nefndarinnar.
Þar skýrði Friðrik Ólafsson stórmeistari nokkrar skákir sínar á ný-
afstöðnu móti í Hollandi. Var öllum skákáhugamönnum heimill að-
gangur, og var kynningin ágætlega sótt, bæði af prófessorum, stúd-
entum og öðrum.
Þess er rétt að geta, að kostnaður í sambandi við þessa starfsemi
var greiddur af tekjum fyrir veitingasölu þessi kvöld.
Skáknefnd skipuðu þeir Grétar Haraldsson, stud. jur., Jónas Elías-
son, stud. polyt., og Gunnar Gunnarsson, stud. med.