Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Blaðsíða 100
98
Tónlistarráöunautur.
Stúdentaráð samþykkti á vetrinum tillögu þess efnis, að æskilegt
væri að ráða tónlistarráðunaut að skólanum. Myndi honum verða
falið að annast tónmennt innan skólans, þ. e. sjá um tónlistarkynn-
ingar, tónlist við hátíðleg tækifæri, stjórn stúdentakórsins og al-
menna tónlistarkennslu þeirra, er æsktu.
Var málinu komið á framfæri við háskólaráð. Tók háskólaráð því
mjög vinsamlega og tók rektor að sér að athuga frekari framgang
þess.
Tónlistarnefnd.
Stúdentaráð tilnefndi á starfsárinu tvo menn í tónlistarkynningar-
nefnd háskólans. Voru það þeir Jóhann J. Ólafsson, stud. jur., og Þór
Benediktsson, stud. polyt. Nefndin annast kynningar í hátíðasal há-
skólans.
Söngstarfsemi.
Karlakór stúdenta starfaði af miklum móði síðastliðinn vetur undir
stjórn Höskuldar Ólafssonar. Voru æfingar að meðaltali einu sinni í
viku og stundum oftar. Kórinn kom tvisvar fram opinberlega, í fyrra
sinnið 1. des. 1958 og hið síðara á sumarfagnaði stúdenta í Lido síð-
asta vetrardag síðastliðinn. Kórinn söng einnig í dagskrá stúdenta í
útvarpinu síðasta vetrardag. Kórinn hefir nú hafið æfingar á ný
undir stjórn sama manns.
í ráði var á síðastliðnu vori að fá hingað þýzkan stúdentakór frá
Heidelberg, sem þá var á söngferðalagi um Bandaríkin. Var undir-
búningi undir komu kórsins að mestu lokið, þegar hætta varð við
allt saman á síðustu stundu af óviðráðanlegum ástæðum.
Vinnu- og húsnæöismiðlun.
Vinnu- og húsnæðismiðlun stúdenta hefir starfað með líku sniði og
fyrr, en starfsemin efldist talsvert á árinu.
Hafizt var handa í nóvembermánuði um að útvega stúdentum
vinnu í jólaleyfinu.. Áttu um 20 stúdentar, sem eftir vinnu óskuðu,
kost á ýmsum störfum.
Eftir áramótin var mikið leitað eftir stúdentum m. a. til kennslu-
starfa, og voru þau jafnan auglýst á töflu í anddyri skólans. Munu
12—15 stúdentar hafa tekið að sér kennslustörf fyrir milligöngu
vinnumiðlunar.
I vor gerði svo nefndin aðra atlögu, nú með tilliti til sumarstarfa.