Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1959, Síða 106
104
maður stúdentaráðs boða almennan fund þeirra stúdenta í deildinni,
er ekki hafa með sér félag, og kýs sá fundur mann í fulltrúaráðið.
6. gr.
Fulltrúaráðið skal koma saman tvisvar á ári, hið fæsta, haust og
vor. Það skiptir sjálft með sér verkum, en formaður stúdentaráðs
skal kalla það saman til fyrsta fundar.
III. kafli: Breytingar á lögununi.
7. gr.
Lögum þessum breytir stúdentaráð að fenginni umsögn háskóla-
ráðs og fulltrúaráðs bóksölunnar um breytinguna, enda fallist al-
mennur stúdentafundur á breytinguna.
Ákvœöi til bráöabirgöa: Þegar lög þessi hafa verið samþykkt, skal
formaður stúdentaráðs þegar tilkynna formönnum deildarfélaga og
öðrum, sem hlut eiga að máli, um setningu þeirra. Skal kappkosta,
að fulltrúaráðið verði skipað og stjórnin kjörin í októbermánuði.
Á fundinum var rætt nokkuð um það, hvernig heppilegast væri að
reikningsári bóksölunnar lyki og ennfremur, hvaða hátt skyldi hafa
á birtingu reikninga hennar. Var að lokum einróma samþykkt, að
ákvarðanir í þeim efnum skyldu teknar af þeim aðilum, sem skipa
í stjórn fyrirtækisins. Ef ágreiningur risi milli þeirra, skyldi málinu
vísað til almenns stúdentafundar.
Ferðaþjónusta stúdenta.
Ferðaþjónusta stúdenta starfaði með líku sniði í ár, og er þetta
þriðja starfsár hennar. Var skrifstofa ferðaþjónustunnar opin sex
stundir í viku hverri.
Ferðaþjónustan starfar í samvinnu við SSTS (Scandinavian Stu-
dent Travel Service), sem sér nú um rúmlega 300 fastar hópferðir
og vinnuferðir auk þess sem hún skipuleggur einstakar hópferðir
eftir óskum og greiðir götu fjölmargra einstaklinga.
Þessar ferðir eru aðallega famar á tímabilinu júní til september.
íslenzkum stúdentum gefst kostur á að taka þátt í öllum þessum
ferðum, og annast ferðaþjónustan þá fyrirgreiðslu, er þarf.
Ennfremur selur ferðaþjónustan hin alþjóðlegu ferðaskírteini stúd-
enta, en þau veita ýmsa fyrirgreiðslu, misjafna þó, í 30 löndum.
Hefir ferðaþjónustan aldrei selt fleiri alþjóðaskírteini en í ár.
Ferðaþjónustan greiddi í sumar götu fjölmargra stúdenta er héldu
utan og snúa sífellt fleiri stúdentar sér til hennar með vandkvæði