Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1963, Blaðsíða 8
6
Islands verið settur prófessor í stað dr. Gylfa Þ. Gíslasonar
menntamálaráðherra.
Á þessu árabili hafa sex dósentar verið skipaðir, þrír við
læknadeild og þrír við verkfræðideild. Eru það þeir Hannes
Þórarinsson í húð- og kynsjúkdómum, Hjalti Þórarinsson í
brjóstholssjúkdómum, Kjartan R. Guðmundsson í taugasjúk-
dómum, Björn Bjarnason, Guðmundur Arnlaugsson og Sigur-
karl Stefánsson í stærðfræði og eðlisfræði. Tvær dósentsstöð-
ur í læknisfræði, í svæfingarfræði og blóðsjúkdómarannsókn-
um, verða veittar nú á næstunni. Hefir háskólaráð samþykkt,
að dósentsstöður verði yfirleitt auglýstar lausar til umsóknar
og dómnefnd fjalli um störfin, nema þar sem ætlunin er að
breyta í dósentsstarf stöðu kennara, sem starfaði við Háskól-
ann, er háskólalög 1957 tóku gildi. Horfa þessir hættir til
öryggis.
Ég býð kennara þá, sem greindir hafa verið, velkomna til
skólans, og væntir Háskólinn sér mikils af kennslu þeirra og
rannsóknum.
Nokkrar breytingar hafa orðið á erlendum sendikennurum
á þessu árabili. Franski sendikennarinn, ungfrú Madeleine Gag-
naire, hvarf frá kennslustarfi sínu sumarið 1961, eftir 5 ára
ágætt starf hér, og í stað hennar kom lic.-és lettres Régis
Boyer. Þá hvarf bandariski prófessorinn David Clark frá Há-
skólanum í fyrrasumar, en í hans stað kom prófessor Gerald
Thorson frá Augsburg College, Minneapolis, er starfaði ár-
langt hér við Háskólann. Eftirmaður hans, prófessor Herman
M. Ward frá Trenton College, er nýkominn hingað til lands,
og býð ég hann velkominn. Prófessor Ward er þriðji prófess
orinn, sem starfar hér við Háskólann með styrk frá Fulbright-
stofnuninni. Fyrirrennarar hans báðir hafa leyst af hendi
mikilvægt starf hér við Háskólann, og kann skólinn stofnun-
inni miklar þakkir fyrir þá vinsemd og skilning, sem hún hefir
sýnt skólanum með þessum hætti. Þá hefir spænski sendi-
kennarinn José Romero horfið frá skólanum. Harrn starfaði
um 5 ára skeið hér við skólann af kostgæfni. Hann er fyrsti
sendikennari í spænsku hér við skólann, og með starfi sínu