Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1963, Page 19
17
lega hefir menntamálaráðherra heimilað Háskólanum að hefj-
ast handa um að koma stofnuninni á fót, og er sú heimild
mikilvæg. Er það von mín, að nú verði hægt að gera veru-
legt átak í raunvísindum hér við skólann, því að þau mikil-
vægu fræði hafa ekki notið þeirrar aðstöðu, sem skylt er hér
á landi, þegar litið er til hins síaukna gildis þeirra fyrir vís-
indalegar og efnahagslegar framfarir. Vér eigum því láni að
fagna hér á landi að eiga mikilhæfa vísindamenn á þessum
vettvangi, og liggur mikið við, að vér búum þeim viðhlítandi
rannsóknaraðstöðu.
Hið þriðja, er ég vil minnast á, er hin stórkostlega efling
Vísindasjóðs á árinu 1961, er tekjur hans uxu úr einni millj.
í þrjár og hálfa millj. fyrir atbeina hæstvirtrar ríkisstjómar
og Alþingis með setningu laganna um efnahagsmál. Vísinda-
sjóður hefir nú starfað í fimm ár og hefir nú þegar orðið
vísindastarfsemi í landinu mikil lyftistöng. Einkum hafa ung-
ir vísindamenn, er unnið hafa að afmörkuðum rannsóknar-
verkefnum, notið mikilsverðra styrkja úr sjóðnum.
Hið fjórða, sem einnig er fagnaðarefni, er hin ánægjulega
afstaða hjá stórfyrirtækjum, er minnast afmæla sinna. Lands-
banki Islands og Samband íslenzkra samvinnufélaga létu af
hendi rakna í tilefni afmæla sinna á síðasta ári mikil fram-
lög til styrktar vísindastarfsemi í landinu, og var gjöf Lands-
bankans beinlínis tengd Háskólanum, svo sem getið var á síð-
ustu háskólahátíð. Minnist ég einnig með þakklæti rausnar-
legrar gjafar Egils Vilhjálmssonar stórkaupmanns til Háskól-
ans í tilefni afmælis fyrirtækis hans á árinu 1959. Það er von
mín, að þessi fyrirtæki vísi veginn um það, er koma skal, og
verði úr hefð. Skilningur manna er óðum að aukast á því,
að íslenzk vísindastarfsemi er ekki á neinn hátt einangrað
fyrirbæri, heldur eru náin tengsl milli vísinda og þjóðfélags,
svo náin, að þjóðfélaginu er ekki meiri styrkur að öðru en
víðtæku, traustu og öflugu vísindastarfi.
Hið fimmta, er ég vil vekja athygli á, er það ákvæði tekju-
skattslaganna nýju nr. 70/1962, að gjafir m. a. til menningar-
starfsemi og vísindastarfsemi, er nemi allt að 10 af hundraði
3