Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1963, Side 46
44
stúdenta, 3. til frjálsrar rannsóknarstarfsemi, 4. fjárveiting
vegna orlofs háskólakennara, 5. til félagsstarfsemi stúdenta,
6. risna deildarforseta, og 7. fjárveiting til rannsóknarstofu í
lyfjafræði lyfsala. Ýmsir liðir hækkuðu og stórlega frá fyrra
árs fjárlögum. Færði rektor ríkisstjórn sérstakar þakkir fyrir
þessa vinsemd á háskólahátíð og taldi þessa afgreiðslu á til-
mælum Háskólans um fjárveitingar marka tímamót.
IV. KENNARAR HÁSKÓLANS
Kennarar í guðfræðideild og kennslugreinar þeirra:
Prófessorar:
Björn Magnússon: Kristileg siðfræði, kennimannleg guðfræði
(helgisiðafræði, trúkennslufræði, verklegar æfingar í barna-
spurningum), Nýjatestamentisfræði (trúarsaga Nýja testa-
mentisins, ritskýring Jóhannesarguðspjalls og Jóhannesarbréfa,
Hebreabréf, samtíðarsaga Nýja testamentisins), æfingar í bréfa-
og skýrslugerð presta.
Magnús Már Lárusson: Kirkjusaga (almenn kirkjusaga og
kirkjusaga fslands), Nýjatestamentisfræði (inngangsfræði
Nýja testamentisins, ritskýring Postulasögu og Pálsbréfa ann-
arra en hirðisbréfa). Hafði leyfi frá kennsluskyldu haustmiss-
erið. 1 fjarveru hans annaðist Jón Sveinbjörnsson, fil. kand.,
kennsluna.
Dr. Þórir Kr. Þórðarson: Gamlatestamentisfræði (ritskýring,
trúarsaga fsraels, Inngangsfræði Gamla testamentisins, fsraels-
saga), Nýjatestamentisfræði (ritskýring samstofna guðspjall-
anna, hirðisbréfa, Pétursbréfa og Jakobsbréfa), hebreska.
Jóhann Hannesson: Kristileg trúfræði, almenn trúarbragða-
fræði, kennimannleg guðfræði (prédikunarfræði, sálgæzlufræði,
verklegar æfingar í ræðugerð), Nýjatestamentisfræði (ritskýr-
ing Opinberunarbókarinnar), trúarlærdómssaga.
Dósent:
Kristinn Ármannsson: Gríska.