Búnaðarrit - 01.01.1912, Síða 18
14 BÚNAÐARRIT.
leggja fjalir á gólflð undir ullina, svo ekki komi í hana
raki frá gólfinu.
Á það legg eg mikia áherzlu, að ullin sé geymd
þannig og tekin upp úr ílátinu þegar heim kemur, en
auk þess á að hrista hana vandlega, svo að öll gróf-
gerðari óhreinindi losni við hana, heizt áður en hún er
iátin í binginn. Þá verður þvotturinn miklu auðveldari,
og meiri vissa fyrir því, að óhreinindin náist úr ullinni.
Bezt er að hreinsa ullina á vírgrind, er sé þannig
útbúin, að rúm sé undir grindinni fyrir óhreinindin.
Yið það að ullin er dregin eftir vírgrindinni, mylst mikið
af óhreinindum og losnar úr ullinni. Þau falla undir
grindina og geymast þar, þangað t'l að þau eru hreins-
uð burtu. Ef þetta er gert, eftir að ullin er hæfilega
þurkuð, má betur ná ýmsu öðru úr ullinni, sem ekki á
að vera þar, svo sem grasi og óhroða, er þá sést betur,
þegar ullin fer dreifð og í þunnum viskum gegnum
vandvirkar hendur. Þetta léttir þvottinn að stórum
mun, og er meiri trygging fyrir því, að hann verði
góður. Þá er lika sjálfsagt, að taka alla mislita lagða
úr hvítu ullinni, hvað litlir sem þeir eru, og láta þá sér,
og eins merki þau, sem stundum eru sett á féð, svo sem
svartur lagður í hvítan sauð, eða rauð pjatla í hvíta á
o. s. frv.
Enginn slíkur mislitur lagður má vera saman við
hvítu ullina; þeir verða þar einungis til þess að spilla
áliti hennar og lækka verðið.
Um leið og ullin er dregin eftir vírgrindinni, er
sjálfsagt að greiða sundur alla flóka, sem finnast, og
yfirleitt búa uliina sem bezt undir þvottinn að hægt er
með nákvæmni og vandvirkni.
Bezt verkuð norðlenzk ull, er komið hefir á mark-
aðinn, hefir haft 12°/o af óhreinindum, en annars er
hún talin að hafa 12—18% óhreinindi. Sunnlenzk ull