Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 31
BÚNAÐARRIT.
27
undirbúnings þeirra og hirðingar. Svo hefir verið ekið
inöl í vegina, sem lagðir voru í fyrra, lagaðir skurðir
og girðing o. fl. smávegis. Frá húsinu og vestur að
horni girðingarinnar á Hraungarðinum var settur niður
skjólgarður 30 f. langur, þannig að settir voru niður
staurar, sívalir girðingastaurar, með faðms millibili, og
fest á þá langbönd tvö, annað ofan til, hitt niður undir
jörð, og svo neglt bárujárn utan á, 5 feta langar plötur.
Innan á hvern stólpa var sett skástífa, sem spyrnir við
hæla í jörðu. Utan við húsið hefir verið bygð skúr-
hlaða, 7 x 10 al. að flatarmáli og 41/* og 4 álna há
yfir jörð, og tæpa alin grafin niður. Á grindina er slegið
ílettingsrimlum, utan á þá er klætt með asfalt-pappa
og klætt utan á hann með járni. Grunnurinn er steyptur
upp jafnhátt húsgrunninum.
í sumar hefir húsið verið þiljað uppi í 5 herbergi.
Að því og öðru timbursmiði hefir smiður unnið mest
alt sumarið, og hefir hann einnig reist myndarlegt hlið
á girðingunni við húsið. Á hestum gróðrarstöðvarinnar
hefir verið flut.t svo mikið sem hægt var af efni því,
sem til hennar hefir þurft að flytja.
Engjar voru lánaðar til að heyja fyrir hestunum,
og voru heyjaðir 55 hestar utan gróðrarstöðvarinnar, og
verður það líklega í síðasta sinn, að heyjað verður fyrir
þeim annarsstaðar en í gróðrarstöðinni sjálfri.
M. Stefánsson. Ben. Kristjánsson.
Skýrsla
nm gróðrarstiiðina á Eiðuin 1910.
17. mai var byrjað að undirbúa vermireit til sán-
ingar og þurfti þá að moka 3 álna djúpum snjóskafli
burtu, áður en hið venjulega vermireitsstæði yrði aðgengi-
legt, en þó var ekki hægt að sá í reitinn fyr en 28.,