Búnaðarrit - 01.01.1912, Síða 34
30
BÚNAÐARRIT.
Af þeim ástæðum, er áður hafa verið nefndar, varð
eftirtekjan fremur rýr.
Að meðaltali fengust af aranum:
Bygg . . 19,8 kg.
Hafrar . 15,5 —
Rúgur . 35,5 —
BI. korn 17,3 —
Blandaða korninu var mestmegnis sáð á spildur, er af-
gangs urðu öðrum tilraunum víðsvegar um stöðina.
Sláttur byrjaði 19. sept., og var alt slegið á næstu
dögum.
Eins og að undanförnu var sáð dálitlu af ertum, alis
5 tegundum (Jölsen Grönert, Michelets Grönert, Rapid,
Ringrikes Grönert og Snedinge). Sumar af tegundum
þessum náðu að blómstra, aðrar ekki, og yflrleitt stóðu
þær langt að baki systrum sínum í fyrra.
Allar voru tegundir þær, er á undan eru nefndar,
þurkaðar til fóðurs.
2. Grasrækt með sáningu.
Síðast liðið vor var litlu bætt við þá grasreiti, er
fyrir voru, og engu blönduðu grasfræi sáð; að eins 0
örum bætt við hina svo kölluðu fræræktarreiti, sem 4
voru fyrir frá síðasta ári. í þessa 9 ara var sáð:
smára (rauðum, hvítum og alsíkku-), axhnoðapunti, vallar-
foxgrasi, fóðurfoxgrasi, háliðagrasi, túnvingul og há-
sveifgrasi. Sömuleiðis var haldið áfram með sáðtíma-
tilraunir þær, sem byrjað var á í fyrra. Þó var ekki
hægt að sá fyr en l.júní, og svo sáð 1. júlí og 1. ágúst.
í haust var svo reynt að sá valllendis-grasfræblöndun
án skjólplantna og alls sáð í 11,6 ara. Sáðtimar hafa
verið 15. júní fyrir vorsæðið og 30. okt. lyrir haust-
sæðið.
Grasvöxturinn vaið furðanlegur á mörgum gras-
spildunum og þó einkum á þeim reitum, sem að eins
l);iru eina grastegund. Háliðagras skaraði þar langt