Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 39
BÚNAÐARRIT.
35
með slátrun og sölu á kindakjöti, geitakjöti og hrossa-
kjöti, þó það auðvitað spilli ekki til.
Alt þetta, sem eg nú hefi tekið fram, er sagt um
kjötskoðun frá heilbrigðislegu sjónarmiði. í öll stærri
kauptún landsins eru nú komnir læknar, sem að sjálf-
sögðu gætu haft og ættu að hafa þetta eftirlit með hönd-
um, en i kaupstöðunum, þar sem dýralæknar eru, mundu
þeir annaðhvort eingöngu eða þá í félagi við héraðs-
lækninn hafa þetta eftirlit. í Danmörku og víðast hvar
þar sem eins margir dýralæknar eru til eins og þar, eru
þeir lát.nir hafa þetta starf, en eins og bæjarlæknirinn í
Kaupmannahöfn, dr. Hoff, tók fram í hnippingum, sem
urðu milli iæknanna út af kjötskoðunarlöggjöfinni, þá
heyrir þetta mál í eðli sínu alveg jafnt undir báðar lækna-
stéttirnar. Læknanna er að segja um, hvað sé heilnæm og
holl mannafæða, og dýralæknanna er að dæma, hvað sé
hraustar og heilbrigðar skepnur; svo að hér mætist
starfsvið þeirra beggja, og því er eðlilegt; að þetta eftir-
litsstarf sé þeim falið, sem hægast á með að inna það
af hendi, fyrst það er æskilegt og nauðsynlegt að það sé
gert, eins og eg hefi nú sýnt fram á.
Dýralæknarnir, sem tekið hafa próf við landbúnaðar-
háskóla Dana, standa hér vel að vígi, því þeir hafa fengið
verklega æfingu í kjötskoðun á sláturhúsum í Kaup-
hiannahöfn og ættu því að geta kent þeim læknanna,
sem ekki hafa aflað sér nægilegrar þekkingar í þessari
grein.
3’