Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 41
BÚNAÐARRIT.
37
þýðingu hefir það, að hann varð ti) þess að koma á hinu
fyrsta rjómabúi landsins, þó að þar væri erfiðara að-
stöðu með það, en í mörgum öðrum sveitum. Ýmsum
öðrum nytsömum félagsskap hefir hann komið á stofn í
sveit sinni, svo sem kúakynbótafélagi og kúaábyrgðar-
félagi. Um leið og hann hefir verið slíkur upphafs-
maður margskonar félagsskapar til búnaðarframfara, sveit-
inni og bygðinni í heild sinni til þrifa, hefir hann og
lengst af búskapar síns haft forstöðu þessa félagsskapar
á hendi, jafnframt því sem hann hefir gegnt hinum venju-
legu sveitarstjórnarstörfum.
64. Gísli P. Sigmundsson, bóndi á Ljótsstöðum í
Skagafjarðarsýslu. Yerðleikar hans taldir einkum þeir,
að hann finnur upp taðkvörnina. Hann hefir byrjað bú-
skap fyrir 14 árum mjög*efnalíti]i. A þessum tima hefir
hann keypt jörðina fyrir 1800 kr., reist íhúðarhús, virt
3560 kr., bygt upp öll peningshús á jörðinni, ásamt
fjóshlöðu. Bygt áburðarhús fyrstur bænda í Skagaflrði.
Tekur til samanburðar að „á fyrirmyndarskólabúinu á
Hólum hafi ekki verið bygt áburðarhús. Óviðfeldið (segir
hann) að þessu hefir ekki verið komið i framkvæmd þar, af
því piltar lesa þar vetur eftir vetur, hversu mikla þýð-
ingu þetta hafi til framfara." Sléttað hefir hann í túni
1 dagsláttu, þurkað upp mýt i og gert að töðuvelli tæpar
5 dagsl. Girt 760 f. langan skurð í gegnum mitt engið,
bæði til áveitu og til að fá nægilegt vatn á vatnsmylnu.
Bygt kartöflugarð, um dagsl. að stærð, og ræktað með
góðum árangri. Haft að þessu mesta kartöflurækt í
Skagafirði.
Þetta árið voru 9 umsóknir: \ úr V.-Skf.s., 3 úr Árn.s., 1
úr Borg.fj.s., 1 úr Barð.str.s., 1 úr N.-ísafj.s., 1 úr Skagafj.s. og
1 úr S.-Þing.s.
Ái-iO 1007".
65. Helgi Pórarinsson, bóndi á Þykkvabæ í Land-
broti í Vestur-Skaftafellssýslu. Fram eru taldar jarða-