Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 42
38
BÚNAÐARRIT.
og húsabætur á árunum 1898—1906. Alls eru talin hjá
honum á þessum árum 1685 dagsverk. Útfærsla á túni 8
dagsi. Miklar girðingar um tún. Afgirt 5 „fjárbyrgi"
(nátthagar), öll að stærð um 6V2 dagsl. Steinlímd safn-
þró með járnþaki. Sáðreitur 800 Qf. Langmest kveður
þó að engjaræktinni: Breytt óræktarflóum í beztu engjar.
Slík svæði, girt og skurðuð, með fyrirhleðslugörðum til
áveitu, talin 120 engjadagsláttur. Efni í stíflugarða víða
orðið að flytja langan veg. Tekið sem dæmi um árangur,
að af engjastykki, sem í meðalári gaf af sér 70 hesta
af heyi, féllu nú síðastliðið sumar 210 hestar, eftir að
veitt hafði verið á það að eins einn vetur. Helgi tal-
inn ágætur verkmaður, hvert verk, sem hann starfar að,
leikur í hendi hans, smiður bæði á tré og járn. Reist
hefir Ilelgi allstórt íbúðarhús, Avílyft með kjallara undir,
peningshús allmörg með járnþaki og 6 heyhlöður með
járnþaki og steinveggjum. Helgi byrjaði fátækur búskap
á Þykkvabæ, en er nú talinn með efnuðustu bændum í
sínu bygðarlagi. Mjög hefir hann stuðiað að framförum
sveitarinnar.
66. Jón Arnason, bóndi og kaupmaður í Þorláks-
höfn í Árnessýslu. Þegar hann kom að jörðinni fyrir
46 árum fékk hann af túninu 43 hesta, en síðastliðið
sumar 290 hesta af vænu bandi. Úr matjurtagörðum,
sem eru um Ú/2 dagsi. að stærð, og hann hefir að mestu
gera látið, fær hann í meðalári um 100 tunnur af kar-
töflum og rófum. Útgræðsla á túni fullar 18 dagsl.,
töluvert upp úr foksandi. Grætt upp rofabörð með því
að gera þau ávöl og bera áburð á þau. Girðing kring-
um túnið er 546 f., að mestu grjótgarður. Öflugur
varnargarður fyrir landbroti af sjávargangi. Tvær safn-
gryfjur steinlímdar. Hefir látið sér mjög ant um nýting
áburðarins frá sjónum, haít á hverri vertíð menn og
hesta í vinnu til að flytja fiskiúrgang allan á túnið.
Lendingarnar — varirnar — sem fylgja jörðinni hefir
hann bætt mjög mikið, og varið til þess ærnu fé frá