Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 44
40
BÚNAÐARRIT.
Alt slægjuland þeirra tveggja jaröa, sem hann hefir undir,
friðað fyrir ágangi gripa framvegis. Nýir kartöflugarðar
hjá honum yflr V2 dagsl. Skriðustokka hefir hann gertr
er varna skriðuhlaupum úr Reynisfjalli, er mjög voru
tíð áður. Útihús hefir Halldór öll bygt upp á jörðiuni
af nýju og gert yfir flest með járnþaki. Hann hefir
bygt fyrstá og stærsta áburðarhús þar í sveit. Hey-
hiöður járnþaktar taka um 1000 hesta. íbúðarhús stórt
og tvílyft talið vera bezt og vönduðust bygging þar í
sýslu. Þá varð Halldór fyrstur til þess að fá vöruskip
þar upp að sandinum, og er með því faðir kaupstaðar-
ins í Yík. Hann byrjaði á því að panta vörur frá út-
löndum til Yestmanneyja og leigði þar skip með vör-
urnar til Víkur. Áður þótti eigi á slíkt hættandi, og í
fyrstu ekki viðlit að fá vörurnar vátrygðar í þeim ílutn-
ingi. Varð það til þess að fastar verzlanir komu i Vik,
Vestur-Skaftfellingum til mikils hagræðis. Enn má nefna
að Halldór hefir eflt sjávarútveg í Vík, notaði þar t. d.
fyrstur ýsulóð. Hann tók og upp á því að reyna net
til hnýsuveiða, sem alstaðar var óþekt áður. Hefir sú
veiði gefið þar mikið góðan arð, og menn lært af Iíall-
dóri þá veiðiaðferð, einkum menn af Austurlandi, og
fengið hnýsunet hjá honum. Hnýsugarnir talin góð
beita. Dyrhólaey hefir hann fengið friðlýst æðarvarp, og
góðar horfur á, að þar komi töluvert varp.
68. ólafur rinnsson, bóndi á Fellsenda í Dala-
sýslu. Hann heflr sléttað í túni 27 dagsl. Grjótgarðar
eru 675 f., torígarðar 514 f., varnarskurðir 581 f., lok-
ræsi 200 f. og vírgirðingar 550 f. Fyrstu árin sem
Ólafur bjó á Fellsenda fékk hann ekki nema eina
200 hesta af túninu, en nú fær hann 500 hesta af
túni og nátthögum. Ibúðarhús hefir hann reist, 14X13
álnir og 11 álna hátt, með miklum geymsluskúrum, alt
úr steinsteypu. Auk margra annara peningshúsa hefir
hann bygt hlöðu, 20 al. langa, 8 al. breiða og 8 al.
háa, með fjósi við aðra hlið yfir 12 nautgripi og haugs-