Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 45
BÚNaÐARRIT.
41
húsi við hlið fjóssins, 22'40 ten.fefc að innanmáli; öll
húsin úr steinsteypu með járnþaki. Ólafur bygði fyrstur
manna steinhús í Miðdalahreppi, og hafa síðan fleiri gert
það og reynst vel.
Þetta árið voru 13 umsóknir: l úr S.-Múlas., 2 úr V.-Skf.s.,
1 úr Rangv.s., 3 úr Arn.s., 3 úr Borgarfj.s., 1 úr Dalas., 1 úr
Strandas. og 2 úr Húnav.s.
ÁriÖ 190».
69. Böðyar Sigurðsson, bóndi í Vogatungu í
Borgarfjarðarsýslu. Túnasléttui- 151/* dagsl. Vörzlu-
skurðir 1845 f. Veituskmðir 130 f. Sáðreitir 510 Qf.
Torfgarðar urn sáðreiti og fjárbæli 300 f. Girðing um-
hverfis tún, með vír og garðlagshleðslu undir, 1150 f.
Mikil vegagerð til heimflut.ninga og til peningshúsa.
Safnhús undir járnþaki 500 ten.fet. Túnið víða lokræst
þar sem þess þurfti með. Hann heflr reist íbúðarhús
alt járnvarið með steinlímdum kjallara undir. Bygt
heflr hann tvær stórar hlöður, að nokkru með stein-
límdum veggjum og með járnþaki og járnvörðum stöfn-
um. Fjósi heflr hann og komið upp undir járnþaki
o. fl. Fyrir 29 árum byrjaði Böðvar búskap í Voga-
tungu með litlum efnum. Sást þá ekki nema lítil flöt
í túninu. Húsakynni voru þar þá gömul og fornfáleg
og jörðin yflr höfuð ekki í miklu áliti. Og eru um-
skiftin talin afarmikil.
70. Magnús Críslason, bóndi á Frostastöðum í
Skagafjarðarsýslu. Magnús telur fram jarðabætur sínar
um 7 ára skeið á eignar og ábýlisjörðum sinum Frosta-
stöðum og Yztu-Grund. Sléttað heflr hann alls um 13
dagsi., mest flagsléttað, plægt og herfað. Gaddavírs-
girðingar 3420 f. Torfgarðar 160 f. Vörzluskurðir 552 f.
Mjög miklir áveituskurðir með stíflugörðum og ílóðgörð-
um. Tekið fram um stíflugarð, 381 f., að hann einn
fyrir sig hafl kostað 900 kr., en í aðra hönd fékk þá
Magnús 400—500 hesta engi árlega, sem alls ekki var