Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 47
BÚNAÐARRIT.
43
rúmar 150 fjár, við steinsteypuhlöðuna. Flest penings-
hús undir járnþaki. Jakob hefir búið á þessari eignar-
jörð sinni í 24 ár. Mátti jörðin heita i niðurníðslu er
hann kom þangað, og bygging mjög lítíl og léleg. Engin
heyhlaða. Túnið gaf þá af sér 100 hesta, en nú yfir
300 hesta, Byrjaði búskap með litil efni. Hefir keypt
jörðina og er nú talinn vel efnaður.
72. Kristján Povláksson, bóndi 1 Múla í Naut-
eyrarhreppi í Norður-ísafjarðarsýslu. Hanu byrjaði bú-
skap fyrir 25 árum. Var túnið þá 14 dagsl. að stærð,
og fengust þá af því í meðalári 60 hestar af töðu. Nú
eru 36 dagsl. innan girðinga, sem gefa af sér yfir 200
hesta af töðu og 30 hesta af útheyi. Þá var ekki nema
1 heyhlaða á jörðinni, sem tók 1 kýrfóður, og 1 fjár-
húskofi. Sléttað hefir Kristján i túni um 15 dagsl.
Nátthagar 2l/s dagsi. og nú komnir i góða rækt. Hlaðið
hefir hann tvöfaldan grjótgarð með 1 gaddavírsstreng
ofan á í kringum tún og nátthaga, 415 f. á lengd, og
grafið 700 f. langan vörzluskurð m. m. Framræslu-
skurðir allmiklir og lokræsi i túni og túnauka. Vega-
gerð mikil. 400 f., frá íbúðarhúsi til sjávar. Kálgarðar
110 □ f. Reist hefir Kristján íbúðarhús, alt járnvarið,
með kj&llara undir, og mikil geymsluhús. Fjós úr stein-
steypu með járnþaki lOXð1/^ al. með áföstu haugshúsi
jafnstóru, líka úr steinsteypu með járnþaki. Fjárhús 6
að tölu, sem rúma 240 fjár. Hlöður 8 talsins, er sam-
tals taka 1000 hesta, flestar með járnþaki. Tekið er
það sérstaklega fram, hvað jarðabæturnar hafa kostað
miklu meira i Múla en rétt alstaðar annarstaðar og
verið erfiðari sakir grjóts, bratta og bleytu. Ellefu fyrstu
árin hafði Kristján einungis hálfa jörðina til ábúðar, en
siðan alla og keypti 2/s jarðarinnar. Sjósókn hefir hann
stundað jafnframt landbúnaðinum og verið formaður í
Bolungarvík nær þvi öll vorin og flesta vetur, og verið
jafnan mjög mikill aflamaður, og hefir hann frá sjónum
fengið féð, sem hann hefir sett á vöxtu í ábýli sitt.