Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 48
44
BÚNAÐARRIT.
Búskap byrjaði Krisján félítíll mjög, og þótti kotið þá lé-
legt, enda niðurnítt. Nú er Kristján við góð eíni, og
jörðin talin mjög gott og lífvænlegt ábýli.
Þetta árið voru 10 umsóknir: 1 úr V.-Skf.s., 1 úr Rangv.s.,
2 úr Árn.s., 1 úr Borg.íj.s., 1 úr Blýras., 1 úr N.-Ísaíj.s„ 2 úr
Húnav.s. og 1 úr S.-Þing.s.
.Áriö lOll.
73. Bjarni Pótursson, bóndi á Grund í Skorradal
í Borgarfjarðarsýslu. Heflr búið þar 12 ár, og ájörðina,
og mun bæðí hafa erft og keypt. Sléttað hefir hann í
t.úni um 13 dagsl. Girðing um tún, gaddavír að mestu
4—-6 þættur, en torf og grjót að nokkru, 570 f. Lok-
ræsi 128 f. Matjurtagarður 200 □ f. Af túnsléttunum
eru um 4 dagsl. græddar út i óræktarmóum ogágrýtt-
um eyðimel, þar sem færa varð til og flytja mikið að
af mold og þökum með alveg óvanalegum kostnaði.
Auk þess er Bjarni, þegar mæling fer fram, að setja
upp engjagirðing, framt að 800 f. langa, er það vírgirð-
ing. Þegar henni er lokið, verður túnið og meiri hluti
engjanna aigirt í einu iagi, en Skorradalsvatn heldur að
á eina hlið. íbúðarhús heflr Bjarni reist tvílyft, og er
kjallari undir því öllu. Geymsiuhús allmikil. Fjós og
heyhiaða undir einu þaki, alt járnvarið; tekur hlaðan
500 hesta. Heyhlaða og fjárhús undir einu þaki, alt
járnvaríð, tekur hlaðan 600hesta. Fieiri smærri penings-
hús reist. Nærri lætur, að Bjarni hafi á hverju ári bú-
skapar síns kostað að meðaltali 1000 kr. til jarða og
húsabóta á ábýli sinu, en um engar aðrar tekjur hjá
honum að ræða en arðinn af búinu. Alt er sem nýtt
væri. Sé3t ekki að nokkuð sé farið að ganga úr sér.
74. Guðmnmlur Erlemlsson, böndi í Skipholti í
Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Hann hefir búið 8 ár
í Skipholti, þá 4 árin næst á undan í Skálholti, en þar
á undan 11 ár á Brjánsstöðum í Grímsnesi. Á öllum
þessum jörðum heflr hann gert mjög miklar jarðabætur