Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 52
48
BÚNAÐARRIT.
■veg við hlöðuna, fjárhús híns vegar —, sé algild fyrir-
mynd; en hentugt getur það verið á gjafarjörðum. Er
nú þegar alltítt að hafa lambahús annarsvegar heima-
hlöðunnar, gegnt fjósi.
Sé fjós og skarnhús tekið burt af myndinni og fjár-
hús sett í staðinn, er fengið vængjabyggingarfyrirkomu-
lag það, sem myndin III. 2. sýnir (og fleíri, er félaginu
bárust). En sé fjárhúsið á I, 1.—2. fjarlægt, verður
hlaða, fjós (og hesthús) og skarnhús sérstætt.
Þótt hlaðan sé á myndinni sýnd með hliðveggjum
úr timbri, er auðsætt, að þeir mætti eins vel vera úr
steini, steyptir eða hlaðnir. Og þótt hJaðan sé eigi sýnd
niðurgrafin, gæti hún verið það, ef byggingarjarðvegur-
inn leyfði.
Jötugarðar fjárhúsanna ná hér veggja milli, og er
það notadrýgra. Kostar auðvitað sérdyr fyrir yztu
krærnar, en aðrar dyr eru sameiginlegar fyrir 2 krær.
Vængur á hjörum á yztu milligerðarstoðinni beinir fénu
á víxl í krærnar, þegar inn er látið, en ætti að mega
kippa honum af hjörunum, þegar út er hleypt (á mynd-
inni er þessi vængur sýndur beggja megin fállandi að
dyrastöfum).
Vakað heflr fyrir höfundinum að stækka mætti öll
húsin með því að færa bakgafl út, án þess öðru þyrfti
að raska.
En nú koma aðfinningarnar.
Eins og allir kannast við, er það ómissandi kostur
við hiöður, að auðvelt sé að láta í þær. Innlagsopið
þarf að vera svo ofarlega, sem kostur er, og heJzt sem
jafnlendast að þvi. Þess vegna er gott að sá gafl (eða
lilið) hlöðunnar, sem innlagsopið er á, viti að hærra
landi en hlaðan sjálf .stendur á. Sé þess eigi kostur,
verður að byggja brú eða þrep upp að hlöðunni, til að
Jétta innlagsvinnuna.
Eftir húsafyrirkomulaginu á I, 1.—2. yrði innlags-
opið að vera á bakgafli hlöðunnar. Upphaflega mætti