Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 59
BÚNAÐARRIT.
55
11. Svarðleitarmaður Sambandsins, Þorkell búfræðingur
Jónsson á Fijót.sbakka, ferðaðist um Fljótsdal haustið
1909 og leitaði mós, og fann hann á 11 bæjum,
sbr. skýrslu hans, sem liggur frammi til sýnis fyrir
fundarmenn.
12. Stjórnin endurnýjaði áskoranir sínar til sýslunefnda
um að fela aðalfundi Sambandsins fulltrúakosningar
til búnaðarþings, en alstaðar er því máli stirðlega
tekið, nema í Norður-Múlasýslu, sem þegar hefir
gert það fyrir sitt leyti.
13. Sótt hefir verið um fé úr sýslusjóðuin Múlasýslnanna
til verðlauna fyrir góða hirðingu áburðar, og kemst
það mál væntanlega á rekspöl á næsta ári.
14. Það gat ekki komist á síðastl. vetur, að kensla færi
fram í rannsókn á berklaveiki i kúm, vegna vönt-
unar á nauðsynlegum áhöldum, en ráðstöfun hefir
verið gerð til að þetta komist í lag næsta vetur.
15. Varið var 20 kr. af Sambandsfé til ferðakostnaðar
ráðunauts i þarfir sláturhússfélagsins. Þó þetta
lægi ekki beinlínis í verkahring Sambandsins, veitti
stjórnin fé þetta upp á væntanlegt samþykki aðal-
fundar, þar sem um nytsamt og gagnlegt mál var
að ræða.
16. Stjórnarfundir hafa verið haldnir fjórir á árinu, og
send út frá stjórninni 41 bréf, auk mikilla sérskrifta
formanns og gjaldkera.
17. Fjárhagur Sambandsins var þannig við síðustu ára-
mót, að það skuldaði gjaldkera kr. 562,54, og höfðu
þá gjöld þess á árinu numið als kr. 6701,14, eða
kr. 253,72 umfram árstekjurnar.
18. Þessar eru fjárvonir Sambandsins þetta ár :
a. Frá Búnaðarfélagi íslands . . kr. 4000,00
b. — sýslusjóðum Múlasýslna . — 600,00
=~ Kr. 4600,00
P. t. Eiðum 22. júní 1910.
Magnús Bl. Jónsson. Þórarinn Benediktsson.
Ounnar Pálsson.