Búnaðarrit - 01.01.1912, Síða 61
BÚNAÐARRIT.
57
búnaðarskóla síðastl. vetur. Var það allvel sótt og
talið yfirleitt heppnast vel. Geta fulltrúar átt kost
á ítarlegri lýsingu þess, ef óskað yrði.
6. Verkfærasýning við gróðrarstöðina var opin sumarið
1910, eins og undanfarið, sömuleiðis það sem af
er þessu sumri.
7. Verðlaun fyrir góða fjárhirðingu hafa verið boðin
og veitt, eins og undanfarið. En sú þarfa viðleitni
Sambandsins er svo lítið notuð, einkum nú síðast,
að .undrum sætir. Þyrfti mönnum að skiljast betur,
hverja þýðingu þau verðlaun gætu haft fyrir sauð-
fjárhirðinguna.
8. Pantanir verkfæra, sáðtegunda, áburðar o. fl. hafa
verið, eins og að undanförnu, framkvæmdar af
ráðunaul Sambandsins, og námu þær árið 1910
kr. 3800,00.
9. Um störf ráðunautsins að öðru leyti vísast til skýrslu
hans til stjórnarinnar, dags. 31. jan. þ. á.
10. Stjórnin endurnýjaði áskoranir sínar til sýslunefnda
um að fela Sambandinu fulltrúakosning til búnaðar-
þings, en þvi var neitað.
11. Úthlutað hefir verið verðlaunum fyrir góða hirðingu
áburðar í Suður-Múlasýslu, og verður bráðlega gert
í Norður-Múlasýslu, fyrir árið 1910, 75 kr. í hvorri
sýslu, er þær hafa veitt Sambandinu í því skyni.
Þetta er rétt spor hjá sýslunum, og vafalaust
ætti Sambandið að taka áburðarmálið fyrir alvöru
á dagskrá sína.
12. Stjórnin leitaðist við, síðastl. vetur, að undirbúa
og hrinda af stað plægingum í stórum stil nú í
sumar. En það mál fékk svo daufar undirtektir,
að sorglega lítið varð úr þeirri tilraun. Máskejrefir
þar um ráðið nokkru óvissa um kjör og fyrirkomu-
lag, en sjálfsagt lika nokkru áhugaskortur. — Þetta
er mál, sem eigi að eins þarf að hrinda aí stað,
heldur þarf að ganga áfram stórum fetum, og að