Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 67
BÚNAÐARRIT.
63
Skýrsla
til Ilúuaðarsambauds Ansturlands uin störf míu árið 1005).
Helztu störf mín á árinu hafa verið þau, sem nú
skal greina.
Búnaðarnámsskeið hafa verið haldin t.vö á sam-
bandssvæðinu. Var annað haldið við búnaðarskólann á
Eiðum, dagana frá 11. til 17. febrúar. Hélt eg þar 8
fyrirlestra. Hefir skýrsla um námsskeið þetta verið
prentuð í „Austra“, og þarf því ekki að geta frekar um
það hér. — Hitt námsskeiðið var haldið í Borgarfirði,
og stóð það yfir frá 17. til 28. marz. Hélt eg þar 16
fyrirlestra um garðrækt, jarðrækt og búfjárrækt, og auk
þess nokkra fyririestra um önnur efni, svo sem sam-
vinnufélagsskap o. fl. Einnig héldu þeir Jón Jóhannes-
son og Jón Guðmundsson, kennarar barnaskólans, dag-
lega fyrirlestra um uppeldisfræði, fræðslumál o. fl.
Eftir fyrirlestrana vora umræðufundir haldnir; voru
þar rædd ýms áhugamál fundarmanna; voru fundir þessir
hinir fjörugustu, og umræður oft fróðlegar og skemti-
legar.
Námsskeið þetta var mjög vei sótt; voru tilheyr-
endur oftast nokkuð á annað hundi-að. Fyrirlestrar og
fundir voru haldnir í hinu nýja skóla- og fundahúsi
hreppsins.
Vörupantanir, fyrir búnaðarfélög og einstaka menn,
hefi eg haft á hendi þetta ár, eins og að undan förnu.
Hafa verið pantaðar sams konar vörur og áður, semsé:
Girðingaefni, verkfæri, sáðtegundir og tilbúinn áburður.
Af girðingaefni hefir verið pantað mest, eða fyrir
hér utn bil kr. 2300,00; hefir það verið gaddavír, sléttur
vír, girðinganet og tréstólpar.
Af verkfærum hefir verið pantað fyrir rúmar 1500
krónur; hafa það verið kerrur, aktýgi, plógar, herfi,
hestarekur, hemlar og ýms handverkfæri.