Búnaðarrit - 01.01.1912, Síða 71
BÚNAÐAKRIT.
67
búið væri að tilkynna það í blöðunum, að mestur hluti
af bústofni Eiðaskólans hefði verið drepinn niður fyrir
fóðurskort. Er það einkennilegt, að menn skuli hafa
gaman af að búa til slíkar lygasögur, og á þann hátt
reyna að rýra álit á opinberum stofnunum, og eins hitt,
að ritstjórar skuli ekki reyna að grenslast eftir um sann-
indi á slíkum sögum, áður þeir láta prenta þær. Hefði
það verið vandalitið í þessu tilfelli, því ekki þurfti annað
en spyrjast fyrir um það á símastöðinni á Egilsstöðum.
Þess skal getið, að nokkru eftir að það kom í blöð-
unum, að búið væri að drepa niður mikinn hluta afbú-
stofni Eiðabúsins, hélt skólanefndin fund hér á Eiðum,
og var þá formanni nefndarinnar falið að mótmæla þessu
opinberlega, en eg heíi ekki orðið þess var, að hann hafi
gert það, og er ilt til þess vita, að slíkar sögur skuli
fá að standa ómótmæltar, því slikt hlýtur að vekja ótrú
á stofnuninni. En Eiðaskólinn hefir hingað til átt nógu
erfitt uppdráttar bæði hjá þingi og stjórn, og á það enn,
þó ekki sé látnar ómótmæltar lognar sögur, sem búnar
eru til skólanum til óvirðingar.
Um pantanir á verkfærum, girðingaefni, tilbúnum
áburði, sáðtegundum o. fl., fyrir búnaðarfélög og ein-
staka menn, hefi eg séð, eins og að undanförnu.
Ilafa pantanir verið nokkuð minni í ár en í fyrra. Hefir
alls verið pantað fyrir tæpar 3800 kr.
Búfjársýning hefir engin verið haldin á Sambands-
svæðinu i ár. Það átti að hafa búfjársýningu í Vopna-
firði í vor, en fórst fyrir vegna harðinda og ótíðar.
Ferðalög hefi eg haft með minsta móti í ár. í júlí
mældi eg fyrir samgirðingu í Fellum, frá Lagaríijóti fyrir
Utan Hreiðai’sstaða tún, um Setberg, Kross, Staff'ell, í
Rangá fyrir neðan Egilssel. Einnig mældi eg fyrir fram-
i'æslu í Fjallsseli og vatnaveitingum í Skógargerði. Þaðan
íór eg út i Tungu og mældi fyrir girðingum, sagði fyrir
* framræslu o. fi., er um hafði verið beðið.
Fyrstu dagana i ágúst fór eg út í Jökulsárhlíð, til
5*