Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 93
BÚNAÐARRIT.
89
Þessu næst fór eg vestur á Mýrar, 15. mai, til leið-
beininga með framræslu, áveitu o. fl. Leiðbeindi í ferð-
inni á 15 bæjum alls. Kom aftur 30. s. m.
Þá lagði eg enn af stað 7. júni, og var ferðinni
heitið austur í sýslur. Fór eg um Krýsivík og Selvog
og síðan áfram austur á bóginn, alla leið austur á Síðu.
í þessari ferð gerði eg ýmsar mælingar, þar á meðal í
Holtunum, í Landeyjunum, undir Eyjafjöllunum, í Alfta-
verinu, á Síðunni og víðar. Á austurleiðinni var eg
einnig á aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands, er
haldinn var í Þjórsártúni 16. júní. Ennfremur tók eg
út skurði í Út-Landeyjum, skoðaði Fljótshlíðarsamgirð-
inguna, sem nú er lokið að fullu, o. s. frv. Kom til
Reykjavíkur 12. júlí.
Lagði aftur af stað 17. júlí með smjörkaupmanni
Herman Styhr frá Newcastle, félaga J. V. Faber’s, til
þess að heimsækja nokkur helztu smjörbúin á Suður-
landsundirlendinu. Yið heimsóttum Yxnalækjarbúið í
Ölfusi, Sandvíkurbúið, Baugsstaðabúið og Hróarslækjar-
búið í Flóanum, Rauðalækjarbúið í Holtum og Rangár-
búið á Rangárvöllum. í sambandi við þessa ferð var
og haldinn aukafundur, 22. júlí, í Þjórsártúni, í Smjör-
búasambandinu. Vorum 7 daga í ferðinni.
Þá fór eg, 30. júlí, austur í Fióa t.il þess að vera
þar við mælingar með Sigurði verkfræðing Thoroddsen,
tii undirbúnings áveitunni úr Þjórsá á Miklavatnsmýri
og svæðið þar í kring. Mældum við fyrir hinum væntan-
legu skurðum og afmörkuðum þá. Vorum við að þessu
verki nálægt þremur vikum.
Þá fór eg enn á ný, 10. sept., austur í Árnessýsiu
og Rangárvallasýslu. í þessari ferð átti eg, meðal annars,
að líta eftir, hvort búið væri að gera við Markarfijóts-
garðinn eða skemdirnar er höfðu orðið á honum vetur-
inn áður. Var því þá eigi lokið, en gert nokkru siðar.
Einnig hélt eg fundi í Flóahreppunum, til þess að kynna
mönnum þar árangurinn af framhaldsmælingum Thal-