Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 94
90
BÚNAÐARRIT.
bitzers, sumarið 1910. Á þessum fundum var kos-
inn maður í hverjum hreppi, og í sumum hreppunum
tveir, til þess að taka sæti i nefnd, er hefði þann til-
gang, að undirbúa Flóa-áveitumálið í hreppunum og
haida því vakandi. í þessa nefnd voru kosnir: Eggert
Benediktsson í Laugardælum og Guðmundur Bjarnason
i Túni fyrir Hraungerðishrepp; Stefán Brynjólfsson i
Fiögu fyrir Villingaholtshrepp; Ólafur Guðmundsson í
Sviðugörðum fyrir Gaulverjabæjarhrepp; Jón Jónatans-
son á Ásgautsstöðum og Júníus Pálsson á Seli fyrir
Stokkseyrarhrepp; Guðmundur ísleifsson á Stóru-Háeyri
fyrir Eyrarbakkahrepp, og Dagur Brynjólfsson í Gerðis-
koti og Sigurður Ólafsson, sýslumaður í Kaldaðarnesi,
fyrir Sandvíkurhrepp. — Kom heim úr þessari ferð 4.
október.
Loks fór eg, 25. okt.., upp í Mosfellssveit, að Blika-
stöðum og Lágafelli, til leiðbeininga, og var tvo daga
í burtu. En eigi gat eg lokið þvi, sem þurfti að gera,
i það sinni, og verður það að biða vorsins.
Samkvæmt framansögðu hefi eg þá verið á ferð
í þarfir Búnaðarfélagsins í 146 daga alls.
Mælingar. Auk mælinganna á Miklavatnsmýri, til
undirbúnings áveitunni úr Þjórsá, er eg var við og áður
er getið, gerði eg ýmsar minni háttar mælingar hór og
þar í sýslunum austan fjalls. — Meðal annars mældi eg
fyrir garði til varnar skemdum af Svaðbœlisá hjá Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum. Fyrirhleðslugarðurinn þarf
að vera um 120 faðma eða 230 metra á lengd, 4^/a—6
fet eða 1,50—1,80 metra á hæð, og breiddin þrisvar
sinnum hæðin. Kostnaðurinn áætlaður 2000 kr.
Þá athugaði eg og mældi, hvað auðið væri að gera
til þess a/5 koma í veg fyrir skemdir af vatnsfallinu
Slcálm í Alftaveri í Vestur-Skaftafeilssýslu. Skálm hefir
upptök sín á Mýrdalssandi, og í vatnavöxtum og jökul-
hlaupum renna í hana kvíslir úr Mýrdalsjökli. Verður
hún þá oft vatnsmikil og flæðir yfir til skemda. Eru