Búnaðarrit - 01.01.1912, Side 98
Námsskeið fyrir eftirlitsmenn
1910 og 1911.
Eins og undanfarin ár hefir Búnabarfélag íslands
haft námsskeið hér í Reykjavík bæði í fyrra og nú í
ár, frá 1. nóvember til 15. desember. Ætlunarverk þess-
ara námsskeiða er, að búa menn undir að hafa á hendi
eftirlitsstarfið í nautgriparæktarfélögum eða þá öðrum
kynbótafélagsskap.
Árið 1910 stunduðu þessir 4 menn námið:
Jón Eiríksson frá Sveðjustöðum í Húnavatnss.,
Jón Hannesson frá Deildartungu í Borgarfj.s.,
Jóhannes Erlendsson frá Sturlu-Reykjum í Borgarfj.s.,
Þórarinn Stefánsson af Seyðisfirði.
Jóhannes Erlendsson er nú eftirlitsmaður í naut-
griparæktarfélagi Reykdæla, Jónarnir stunda búskapinn
heima hjá sér, en Þórarin er mér ókunnugt um. Jón-
arnir báðir eru búfræðingar frá Hvanneyri.
I ár eru nemendur 11, þessir:
Bergsteinn Kristjánsson írá Árgilsstöðum, Rangárv.s.,
Brynjólfur Bjarnason frá Deildartungu, Borgarfj.s.,
Brynjólfur Bjarnason frá Framnesi, Árnessýslu,
Guðmundur Guðmundsson frá Hólum, ísafjarðars.,
Halldór Bjarnason frá Túni, Árnessýslu,
Jóhann Ásmundsson frá Bjargi, Húnavatnssýslu,
Nikulás Albertsson frá Vakursstöðum, N.-Múlas.,
Ólafur Guðbrandsson frá Stóruvöllum, Rangárv.s.,
Ólafur Jónsson frá Sóiheimum í Vestur-Skaftafellss.,
Sigurður Gíslason af Isaflrði,
Þórður Þórðarson frá Skálholti, Árnessýslu.
Brynjólfur frá Deildartungu, Jóhann frá Bjargi, Ólafur
frá Sólheimum og Sigurður af Ísafirði eru búfræðingar.
Halldór, Ólafur Jónsson og Þórður taka við eftirlits-