Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 104
100
BÚNAÐARRIT.
ræktarfólagsskap. Nautgriparæktarfélagsskapurinn, út af
fyrir sig, gefur þó svo góðar leiðbeiningar um val gripa
til undaneldis, að vel má notast við það eingóngu, en
án þess að styðjast við þennan félagsskap eru sýningar
gagnslitlar. Yið gerum því efalaust réttast í að spara
algerlega fó til nautgripasýninga, að minsta kosti fyrst
um sinn.
Sú litla fjárhæð, sem á fjárhagsáætlun Búnaðarfé-
lags íslands er ætluð til kvikfjárræktar, er að mestu
leyti bundin sem styrkur til ýmiskonar kynbótafélags-
skapar, svo lítið verður afgangs til sýninga. Stjórn fé-
lagsins hefir því nú ákveðið, að á þessu ári styrki félagið
að eins héraðssýningar á hrossum í vor og hrútasýn-
ingar í haust.
Fyrirkomulagið á héraðssýningunum fyrir hross er
hugsað þannig:
Graðhestar eru sýndir í þremur aldursflokkum með
hækkandi verðlaunum, t. d.:
I. verölaun II. verðlaun • III. verðlaun
kr. kr. kr.
1. Þrévetrir folar . . 40,00 30,00 20,00
2, Fjögurra vetra folar 50,00 40,00 30,00
3. Fimm vetra grað- hestar og eldri. . 60,00 50,00 40,00
Auk þessara þrennu verðlauna má í fjórða iagi dæma
hestum viðurkenningu um að þeir sé hæfir til undan-
eldis, og fylgir því réttur til að taka á móti folaseðlum
þeim, sem síðar verða nefndir.
EigeDdur þeirra graðhesta, sem verðlaun hljóta, eru
skyldir, ef þeir taka við verðlaununum, að hafa hestana
ógelta, í góðu ásigkomulagi og í haldi, vorið eftir sýn-
inguna til 15. júlí. Fram að þeim tíma má hver sem
er leiða hryssur til folans, gegn þriggja króna folatolli,
en í annað eða þriðja sinn það vor á hryssueigandi heimt-
ingu á, að halda hryssum undir hestinn an endurgjalds.
Sé meiri aðsókn með hryssur til graðhestsins en svo, að