Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 106
102
BÍ’NAÐARRIT.
sýningarnefndinni. Og úr þeim sýningarsjóði er svo eig-
endum verðlaunaðra eða viðurkendra graðhesta borgað-
ur hver folaseðill, sem þeir ieggja fram, með þremur
krónum. Á folaseðilinn þurfa folaeigendur að undirskrifa
vottorð um, að hryssan, sem seðillinn var gefinn út á,
hafi fengið við sinum verðlaunaða eða viðurkenda fola.
Næsta sumar eftir að búnaðarfélagið hefir tekið á
móti þessum hryssuskrám frá folaeigendum, þá sendii'
það eyðublOð til allra þeirra, sem hafa haldið hryssum
undir verðlaunaðan eða viðurkendan graðhest, til þess að
fá upplýsingar um árangurinn. Af þeim upplýsingum
má dæma nokkuð um frjósemi graðhestanna (hve mörg
°/o af hryssum hafa verið með folaldi), einkum ef mörg-
um hryssum hefir verið haldið undir þá. Um folöldin
er tiigieint kyn og litur, ásamt umsögn um vænleika
þeirrs, og gefur þetta alt góðar upplýsingar um að hverju
gagni hesturinn muni verða t.il kynbóta, og verður notað
með til að dæma hestinum verðlaun í næsta sinn, ef t.il
kemur.
Öll hross, sem sýnd eru, þurfa að vera bandvön, og
sýnendur verða að sjá um að einhver sé fyrir þeirru
hönd til að gæta hrossarina á sýningunni og hlýða fyrir-
skipunum sýningarnefndar og dómenda.
Til að undirbúa sýningarnar er í hverju sýningar-
héraði minst þriggja manna nefnd. Skal einn þeirra
manna tilnefndur af Búnaðarfélagi íslands, en hinir af
sýslunefnd eða sýslunefndum í sýningarhéraðinu, og er
hent.ugast að reglan sé sú, að einn maður sé úr hverju
sýslufélagi héraðsins, nema þegar héraðið er að eins eitt
sýslufélag. Sama regla gildir um kosningu manna í dóm-
nefndir til að dæma graðhesta og hryssur. Sami mað-
ur getur auðvitað vel verið bæði í sýningarnefnd og í
annari dómnefndinni. Þóknun til sýslukjörinna manna
greiðir sýslan, en Búnaðarfélagið þeim er það tilnefnir,
og greiðist þetta ekki af því fé, sem veitt er til sýning-
arinnar.