Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 118
114
BÚNAÐARRIT.
5 ganga þannig 200 hestar af áburði í garða, sem eru
um 1000 □faðma að stærð. Er kúm þar geflð tölu-
vert af rófum og káli. Annarsstaðar eyðist ekki í
garðana nema á að gizka 20—40 hestar. Af því sem
hér ■ er sagt má sjá, að jaröirnar eru upp og ofan, og
ekki að tala um neitt úrval, sem standi öðrum sveitum
framar.
Er eg nú kem að aðalatriðinu : hvaða áburð fengu
tv.nin og hver varð eftirtekjan? og legg tvö geldneyti
til jafns við eina kú, sést að:
Áburður ur ‘
gefur 7013
hesta af töðu
870 kindum .
úr 7 forum
Fóður H6V2 kúa nemur alls (40 hesta hver) 4660 hestum..
Af gengur af töðu fram yflr fóður kúnna 2353 hestar.
Taðan hefir þannig verið nálega réttum þriðjungi
meiri en fóður kúnna.
Þó þetta sýni engan veginn, hve mikil taða hefir
sprottið upp af áburði kúnna, þá sýnir það þó ijósiega,.
að túnin gefa miklu meira af sér, en fóðri þeirra nemur..
Þá sést það og, að á sumum jörðunum, sem bezt hafa
túnin, er litlu eða engu áfátt til þess að túnið fóðri
skepnur þær, sem leggja áburðinn til. Á jörðinni nr.
1 fær túnið t. d. ekki annan áburð en 4 kúa og 6
hrossa að vetri (ef foraráburður þar er látinn mæta mat-
jurtagarði). Ef kúnum eru ætlaðir 160 hestar, verða
40 hestar afgangs af fóðri þeirra, því taða er talin 200
hestar. Ef þess er gætt, að hér er ekki að tala um
eldishesta, heldur almenna hýsingu og vetrarhjúkrun, þá
munar minstu, að 40 hestarnir svari fyllilega til áburð-
arins. Eftir áætlun Torfa Bjarnasonar svarar áburður
undan 10 hestum, sem hýstir eru og hjúkrað að vetrar-
lagi, til mykju undan einni kú. Þó hér væri ríflega
í lagt, og talið að 6 hestar svöruðu til einnar kýr, þá