Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 120
116
BÚNAÐARRIT.
vorir hefðu skýrt svar á reiðum liöndum viðvíkjandi
svo þýðingarmikiili spurningu, en eg hefl þó ekki orðið
þess var. Nú er hver jörð setin í sveitinni að telja má,
og eigi fóikinu að íjölga til muna, þarf býlunum að fjölga.
Annars er engin von til þess, að fólksstraumurinn
minki að sjónum og kaupstöðunum. Eflaust verður
spuiningunni aldrei svarað viðunanlega með áætlunum,
heldur beinlínis með reynslu, og mætti ef til vill fara
nærri um þetta, þar sem þröngbýli er og landiými lítið.
Hér í sveitinni hagar ekki þannig til, og hlýt eg því að
st.yðjast við áætlanir. Ef til vill geta þær oiðið til þess,
að aðrir gæfu nákvæmari upplýsingar. Þetta væri ekki
þýðingarlaust, því meðan sú trú helst, að þessi miklu
landflæmi með hverri jörð só óhjákvæmileg, er ekki von
til, að jarðir skiftist, eða nábýli rísi upp.
Eg hefi hér að framan fært nokkrar líkur fyrir því,
að túnin geti fóðrað skepnurnar, ef afrétti má nota á
sumrum og heimalandið nægir bæði til sumarhaga fyrir
þær fáu skepnur, sem heima eru, og nokkurrar vetrar-
beitar. Nú er auðsætt, að túnið þarf ekki ýkja-stóra
landspildu. Aðalatriðið verður, hve mikið land þarf til
sumarhaga, handa kúm og hrossum, og nauðsynlegrar
vetrarbeitar handa kindum og hrossum.
Eg hefl eitt sinn leitað álits eins hins skynsamasta
bónda, sem verið heflr hér nærlendis í seinni tíð, um
það, hve stórt haglendi sauðkind mundi þurfa upp og
ofan til beitar allan ársins hring, þegar til jarðar næði.
Hann taldi að það væri vel í lagt, ef ein dagslátta kæmi
á kind, svo framarlega sem landið væri að miklu leyti
haglendi og ekki blásið upp að mun, en eflaust minna,
ef um verulega gott land væri að ræða. Sé þetta
lagt til grundvallar, og þess gætt, að kindur eru um 11
vikur á afrótt, ætti að þuifa um 700 □faðma hag-
lendis handa hverri kind, hér um hil 7 dagsláttur handa
hrossi og 5 dagsláttur handa kú. Þá er að athuga, hve
stórt bú má ætla hverju smábýli, til þess að fjölskylda