Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 121
BÚNAÐAKRIT.
117
komist sómasamlega af. Eftir minni reynslu væri nægi-
legt að gera ráð fyrir 3 kúm, 3 hrossum og 100 fjár.
í hverju meðalári gefur slíkt bú af sér 1400—1600 kr.
brúttótekjur, og hjón geta unnið fyrir því án hjálpar, ef
ekki þarf á óræktaða jörð að ganga til heyskapar.
Ef vér reiknum landið nokkru ríflegar en áætlað
vár hér að ofan, þarf slikt bú:
Haglendi fyrir 100 fjár (1 dagsl. kindin) 100 dagsláttur,
-----— 3 hross (8 dagsl. hrossið) 24----------
-----— 3 kýr (6 dagsl. kýrin) 18----------
Tún........................................ 20---------
AUs 162 dagslattur.
Ef pessi áætlun er ekki mjög fjarri lagi, þá geta
allir séð, hve ónauðsynleg hin afar-viðlendu heimalönd
eru, og að bygðin getur orðið margfalt þéttari.
Nú kunna sumir að ætla, að komast mætti hjá því,
að hafa svo mikla heimahaga, sem eg hefi gert ráð
fyrir, og láta allar skepnur ganga á ræktaðri jörð. Um
það skal eg ekki dæma, því eg hefi ekki reynslu
fyrir því.
Mér virtist það ekki fjarri, að gerðar væru tilraunir
með smábýli í líku sniði og eg hefi lýst, á hentugum
landssjóðsjörðum, sem liggja við akbraut, eða þar sem
ílutningar á annan hátt eru auðveldir, því flutningur á
byggingarefni o. fl. yrði mjög tilflnnaniegur að öðrum
kosti, og óþörf hiossaeign niðwrdrep fyrir smábónda.
Ef þetta gætist vel, kæmi til tals, að auka vega-
gerð að miklum mun, til þess að gera lítt notaðar lendur
aðgengilegar fyrir stofnun nýbýla. Slíkt væri ekki ófram-
kvæmanlegt, ef þegnskylduvinna kæmist á, og jafnvel
gæti komið til tals að nota lánsfé í þessu augnamiði,
ef reynslan sýndi að þetta bæri sig vel.